Fara í efni

Sérfræðingur landupplýsinga

Laust er til umsóknar starf sérfræðings á fagsviði landupplýsinga hjá Landmælingum Íslands. Mikilvægi landupplýsinga eykst stöðugt og vantar okkur reynslumikinn og áhugasaman einstakling sem er tilbúinn til að taka þátt í þróun á nýjungum á því sviði. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af verkefnastjórn á sviði öflunar og samtenginga landupplýsinga og hafa góða þekkingu á vinnslu þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við gerð og viðhald landfræðilegra gagnagrunna um Ísland
  • Leiða vinnu við uppfærslu landupplýsinga í samstarfi við fagstjóra
  • Mikil samskipti við notendur gagna og ábyrgðaraðila
  • Öflun gagna með fjölbreyttum aðferðum
  • Innleiðing á lausnum byggðum á opnum hugbúnaði

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði raunvísinda eða annarra greina sem nýtist í starfi
  • Góð þekking á notkun landupplýsingakerfa, einkum QGIS og ArcGis
  • Þekking á OGC vefþjónustum og stöðlum er kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og skipulögðum vinnubrögðum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í starfi
  • Gott vald á íslensku er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið frá og með 1. febrúar 2023. Hjá stofnuninni er fjarvinnustefna og eru talsverð tækifæri til fjarvinnu.

Landmælingar Íslands eru 22 manna ríkisstofnun staðsett á Akranesi. Meginhlutverk stofnunarinnar er að sinna landmælingum, vinnslu og miðlun landupplýsinga og leiða uppbyggingu grunngerðar fyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandi.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.01.2023

Nánari upplýsingar veitir

Jóhanna Hugrún Hallsdóttir - johanna@lmi.is - 8615890

Smelltu hér til að sækja um starfið