Fara í efni

Niðurstöður ISNET2016 mælinganna

Sumarið 2016 var grunnstöðvanet Íslands mælt í þriðja sinn. Niðurstöður voru kynntar á vel sóttum fundi á Grand Hótel þann 14. nóvember síðastliðinn. Gerðir hafa verið hnitalistar þeirra mælistöðva sem unnið var úr eftir ISNET2016 mælingarnar og mynda grunninn fyrir nýja viðmiðun ISN2016. Hnitin eru birt sem jarðmiðjuhnit, baughnit með hæð yfir sporvölu GRS80 og hornsönn keiluhnit Lamberts með hæð yfir GRS80. Â EPSG númer hafa verið fengin fyrir ISN2016 og er þau að finna í töflunni hér að neðan.

Nafn EPSG númer Tegund
Islands Net 2016 / ISN2016 EPSG::1187 Viðmiðun (Geodetic Datum)
ISN2016 / Lambert 2016 EPSG::8088 Hnitakerfi í kortavörpun (ProjectedCRS)
ISN2016 EPSG::8084 Jarðmiðjuhnit (GeodeticCRS (geocentric))
ISN2016 EPSG::8085 Baughnit með sporvöluhæð (GeodeticCRS (geographic 3D))
ISN2016 EPSG::8086 Baughnit (GeodeticCRS (geographic 2D))

 

Einnig er hægt að hlaða niður Shape skrá sem inniheldur hnit mælistöðvanna auk annara upplýsinga. Þá hafa verið gerð vörpunarnet til þess að varpa úr ISN93 og ISN2004 yfir í ISN2016. Netin eru á svokölluðu NTv2 formi fyrir breytingar í legu og gtx formi fyrir breytingar í hæð. Nú stendur yfir vinna við gerð leiðbeininga um hvernig nota á þessi net í landupplýsingahugbúnaði og haft verður samband við hugbúnaðarframleiðendur til að koma þessum vörpunum inn í næstu hugbúnaðaruppfærslur. Vörpunarnetin með leiðbeiningum verða birt á heimasíðu Landmælinga Íslands og á niðurhalsþjónustu í byrjun næsta árs.