Fara í efni

Landmælingar Íslands og Vatnajökulsþjóðgarður efla samstarf á sviði korta- og landupplýsingamála

Kortið sýnir útlínur jökla frá árinu 1890 til 2014.
Kortið sýnir útlínur jökla frá árinu 1890 til 2014.
Landmælingar Íslands og Vatnajökulsþjóðgarður sinna mikilvægum verkefnum við að skrá og varðveita íslenska náttúru og að stuðla að sjálfbærri þróun á því sviði. Nýlega undirrituðu forstjóri Landmælinga Íslands og framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs viljayfirlýsingu á sviði korta- og landupplýsingamála til að nýta sem best styrkleika beggja stofnana. Viljayflirlýsingin byggir m.a. á þeirri vinnu sem þegar hefur átt sér stað vegna vinnslu korta fyrir umsókn um að Vatnajökulsþjóðgarður komist á heimsminjaskrá. Einnig er mikilvægt markmið opið aðgengi að landupplýsingum á grundvelli laga um grunngerð stafrænna landupplýsinga nr. 44/2011. Síðast en ekki síst er í viljayfirlýsingunni lögð áhersla á að efla samstarf og miðlun þekkingar meðal starfsmanna við öflun, úrvinnslu og miðlun landupplýsinga.