Fara í efni

Landflokkun á strandsvæðum

Gulu línurnar afmarka það landsvæði sem skilgreint hefur verið sem „Strandsvæði“ (Coastal Zone) á Í…
Gulu línurnar afmarka það landsvæði sem skilgreint hefur verið sem „Strandsvæði“ (Coastal Zone) á Íslandi. Um er að ræða 10 km breiðan kraga frá fjöru og inn til landsins.
Samevrópsk landflokkunarverkefni heyra undir Copernicusaráætlun ESB en Umhverfisstofnun Evrópu, EEA (European Environment Agency), hefur umsjón með framkvæmd þeirra. Elst og þekktast þessara verkefna er CORINE-landflokkunin sem hófst fyrir 1990 og byggist á notkun gervitunglamynda. CORINE-flokkunin er endurtekin með nýjum gervitunglamyndum á 6 ára fresti (1990, 2000, 2006, 2012 og 2018) en eftir því sem fjarkönnunartækninni og möguleikum í tölvuvinnslu myndefnisins hefur fleygt fram hefur EEA efnt til nýrra landflokkunarverkefna í þeim tilgangi að fylgjast nánar með umhverfisbreytingum á ákveðnum svæðum. Þessi verkefni eru annars vegar svokallaðar háupplausnarþekjur (HRL: HighResolution Layers) sem eru uppfærðar á þriggja ára fresti:
  • Gegndræpi yfirborðsins (Imperviousness)
  • Skógar – Trjágerð (Dominant Leaf Type)
  • Skógar – Þéttleiki (Tree Cover Density)
  • Graslendi (Grassland)
  • Vatn og bleyta (Water and Wetness).
Hins vegar eru það landflokkunarverkefni sem snúa að sérstaklega áhugaverðum eða viðkvæmum landsvæðum þar sem örra breytinga er að vænta (THM: Thematic Hotspot Mapping) og er sú kortlagning endurtekin á 6 ára fresti:
  • Þéttbýli (Urban Atlas)
  • Riparian Zones (Ár- og vatnsbakkar)
  • Natura2000 (sérstök náttúruverndarsvæði).
CORINE-landflokkunin er gerð í hverju aðildarlanda EEA fyrir sig en HRL og THM verkefnin eru boðin út og þau unnin miðlægt af fyrirtækjum í landupplýsingaiðnaði en niðurstöðurnar síðan sendar til EEA-ríkjanna til gæðamats og leiðréttinga. Landmælingar Íslands hafa frá upphafi séð um CORINE-flokkunina og gæðamatið á HRL og THM þekjunum fyrir Ísland. Strandsvæði Nú hefur nýrri gagnaþekju, Strandsvæðum (Coastal Zones), verið bætt við THM verkefnin. Strandsvæði eru gríðarlega mikilvæg fyrir efnahag Evrópu. Um það bil 40% íbúa ESB búa innan 50 km frá sjó. Næstum 40% af vergri landsframleiðslu ESB myndast á þessum landsvæðum og yfir 75% af umfangi utanríkisviðskipta ESB fer fram á sjó. Sú mikilvæga efnahagslega og félagslega starfsemi sem fer fram á strandsvæðum hefur haft mikil umhverfisleg áhrif. Siglingar, auðlindanýting, ferðaþjónusta, framleiðsla á endurnýjanlegri orku og fiskveiðar, allt setur þetta mikið álag á strendurnar. Þessa álags hefur orðið vart á flestum strandsvæðum Evrópu og hefur leitt til hnignunar búsvæða, mengunar og flýtt fyrir landeyðingu og loftslagsbreytingar munu líklega ógna strandsvæðunum og þeim samfélög sem þar eru enn frekar í framtíðinni. Þessi ógn leiðir til þess stjórnunar er þörf sem bæði tekur tillit til umsvifa mannsins sem og verndunar á viskerfum strandsvæðanna. Landflokkun á strandsvæðum EEA hefur núna boðið út kortlagningu strandsvæða sem fyrsta þátt í þeirri viðleitni að fylgjast með breytingum á landgerðum og landnýtingu með tímanum. Nýju gagnaþekjurnar munu ná yfir öll strandsvæði Evrópu frá sjó og 10 km á land upp, samtals um það bil 730.000 km² (sjá mynd). Minnstu kortlögu blettir verða 0,5 ha að flatarmáli og fjöldi mismunandi landgerða rúmlega 60. Þessi fyrsta kortlagning strandsvæða Evrópu mun samanstanda af eftirfarandi gagnaþekjum:
  • Landgerð/landnotkun miðað við árið 2012
  • Breytingar á landgerð/landnotkun milli 2012 og 2018
  • Landgerð/landnotkun árið 2018
Kortlagning strandsvæða mun síðan verða endurtekin á 6 ára fresti. Gert er ráð fyrir að niðurtstöður úr þessu fyrsta landflokkunarverkefni á strandsvæðum muni liggja fyrir í lok árs 2020. Landmælingar Íslands munu sjá um gæðamat og hugsanlega leiðréttingar á niðurstöðunum fyrir Ísland.