Fara í efni

Kvarðinn, fréttabréf Landmælinga Íslands, er kominn út

Annað tölublað Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands á árinu 2019 er komið út. Í blaðinu er meðal annars sagt frá Corine-landgerðaflokkuninni, málþingi sem haldið var í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá því Landmælingar Íslands fluttu á Akranes og að Landmælingar Íslands taka við formennsku í Arctic SDI verkefninu. Þá er viðtal við Magnús Guðmundsson fráfarandi forstjóra Landmælinga Íslands. Kvarðinn kemur út þrisvar á ári og er eingöngu gefinn út á rafrænu formi.