Fara í efni

Kjörin í stjórn Eurogeographics

Eydís Líndal Finnbogadóttir forstjóri Landmælinga Íslands hefur verið kjörin til tveggja ára í stjórn Eurogeographics, sem eru samtök korta og fasteignastofnana í Evrópu. Í samtökunum eru 61 stofnun frá 47 löndum og eru þau faglegur vettvangur korta- og fasteignastofnana í Evrópu. Landmælingar Íslands og Þjóðskrá Íslands eru aðilar að EuroGeographics fyrir Íslands hönd en þátttaka íslensku stofnananna er mjög mikilvæg og tengist hagsmunagæslu Íslands og þekkingaröflun um hvað gerist í Evrópu á þessu sviði.