Fara í efni

Hræðilegt kort

Hryllingsörnefnakortið sem sló öll met fyrir ári birtist hér aftur aðeins uppfært.
 
Við gerð þessa hræðilega korts leituðum við að örnefnum sem innihalda m.a. þessi hrikalegu orð: höggstokk, dauði, bein, ill, drauga, blóð, drekking, vond, aftöku, nykur, lík, dráp, sníkju, galdra, viðbjóð, tröll, skessa, gálga, hel, móri, gláma, hel, Svörtuloft, dys, mannskaða, leggjarbrjót, djöfla, grafar, útburðar, orusta, orrusta, víg, bana... Samtals 1324 örnefni eða um 100 fleiri örnefni en í fyrra.
 
Listinn er ekki tæmandi!