Fara í efni

Breytingar á stjórn Landmælinga Íslands

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur sett Eydísi Líndal Finnbogadóttur, forstjóra Landmælinga Íslands tímabundið í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, frá 1. janúar 2022 til eins árs.

Við embætti Eydísar hjá Landmælingum tekur Gunnar Haukur Kristinsson til eins árs, en hann hefur undanfarin ár verið staðgengill forstjóra Landmælinga Íslands.