Fara í efni

Aðgengi að loftmyndum Loftmynda ehf.

Loftmyndir ehf og Landmælingar Íslands hafa undirritað tímamótasamning um aðgengi að loftmyndum Loftmynda ehf fyrir allar A-hluta ríkisstofnanir. Með samningnum er tekið stórt skref í átt að samræmdu aðgengi að grunngögnum en loftmyndir eru m.a. nýttar til kortlagningar, skipulagsgerðar og hönnunar. Samningurinn er gerður til eins árs.

Samningurinn mun veita ríkisstofnunum möguleika á að nýta loftmyndir á vefsíðum sínum sem og að vinna landupplýsingar ofan á þær og er ætlað að styrkja enn frekari uppbyggingu landupplýsinga á Íslandi.

Á næstu dögum munu þær ríkisstofnanir sem þegar eru í samningssambandi við Loftmyndir ehf fá kynningu á næstu skrefum en auk þess verður öðrum stofnunum kynnt fyrirkomulag aðgengisins.