Stefnumótun 2011-2015
Miklar beytingar hafa orðið á starfsumhverfi Landmælinga Íslands á undanförnum árum. Breytingarnar einkennast fyrst og fremst af aukinni notkun almennings á landupplýsingum og örum tækniþróunum á því sviði. Þá hafa Landmælingar Íslands fengið nýtt hlutverk vegna grunngerðar fyrir stafrænar landupplýsingar og INSPIRE-tilskipun Evrópusambandsins.
Landmælingar Íslands eru framsækin þekkingarstofnun í stöðugri þróun þar sem gildi stofnunarinnar nákvæmni, notagildi og nýsköpun eru grundvöllur starfseminnar. Stefnumótun Landmælinga Íslands fyrir árin 2011-2015 sem unnin var af öllum starfsmönnum, miðast við gildin og þær breytingar sem sífellt eiga sér stað í starfsumhverfinu.



