Starfsmenn
Hjá Landmælingum Íslands starfa 28 starfsmenn, flestir háskólamenntaðir sérfræðingar. Lögð er áhersla á gott starfs-umhverfi þar sem endurmenntun, starfsþróun og gott upplýsingastreymi eru meðal lykilþátta. Verkefni Landmælinga Íslands eru mörg og krefjandi og starfsmenn mega ávallt eiga von á því að þurfa að takast á við ný verkefni. Öflug þekking og reynsla hefur skapast meðal starfsmanna en það er undirstaða góðra lausna og þess að ávallt sé unnið undir formerkjum nákvæmni, notagilda og nýsköpunar. Meðalaldur starfsmanna um 45 ár.


