Örnefnagrunnur LMÍ
Frá því um 1990 hefur verið unnið að skráningu örnefna á Landmælingum Íslands, þar sem stafrænn örnefnagagnagrunnur er markmiðið. Örnefnagagnagrunnurinn er ætlaður til notkunar á stofnuninni til kortagerðar og annarra þarfa og verður því með tengingu við kortgrunna stofnunarinnar ásamt hnitsetningu nafna til staðsetningar. Gerðir hnita eru mismunandi eftir tilgangi, en hnitsetning nafna er ein af forsendum nútíma stafræns örnefnagagnagrunns. Gagnagrunnurinn er af gerðinni Oracle.
Stofnunin er í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Örnefnanefnd í samræmi við lög þeirra, en í lögum um Landmælingar Íslands segir meðal annars: “Kortlagning og miðlun upplýsinga um örnefni í samráði við Örnefnastofnun Íslands” og í lögum Örnefnastofnunar Íslands: “leggja rækt við náið og virkt samstarf og samráð við aðrar stofnanir”. Að auki stendur í lögum Örnefnanefndar: “Örnefnanefnd skal fjalla um nafngiftir býla skv. 5., 7. og 8. gr. laganna. Jafnframt úrskurðar örnefnanefnd um hvaða örnefni verða sett á landabréf sem gefin eru út á vegum Landmælinga Íslands, eða með leyfi þeirrar stofnunar, sé ágreiningur eða álitamál um það efni.” Framangreint hefur verið haft að leiðarljósi og eru hátt í 50 þúsund nöfn að finna í örnefnasafni LMÍ í dag. Vinnan til þessa hefur einkum falist í upplýsingasöfnun sem er undanfari hnitsetningarinnar.
Á árunum 1994 - 2000 tóku Landmælingar þátt í norrænu samstarfi um uppbyggingu norræns örnefnasafns sem landmælingastofnarnir Norðurlandanna stóðu fyrir.