Landmælingar Íslands
> Skip Navigation LinksLmi > Sérsvið > Corine

CORINE - flokkun landgerða


CORINE-verkefnið (CORINE: „Coordination of Information on the Environment“. Á íslensku: „Samræming umhverfisupplýsinga“) er samevrópskt landflokkunarverkefni sem flest Evrópulönd taka þátt í. Verkefnið felur í sér kortlagningu á landgerðum samkvæmt ákveðnum staðli og er unnið með sömu aðferðum og á sama tíma í öllum þátttökulöndunum. CORINE-flokkunin er uppfærð á nokkurra ára fresti en megintilgangur hennar er að afla sambærilegra umhverfisupplýsinga fyrir öll Evrópuríki og fylgjast með breytingum sem verða á landnotkun í álfunni með tímanum. Fyrsta CORINE-flokkunin var gerð uppúr 1990 og var hún síðan uppfærð í fyrsta skipti árið 2000 en önnur uppfærslan er miðuð við árið 2006. Reiknað er með að næsta CORINE-flokkun verði gerð árið 2012. Umhverfisstofnun Evrópu (EEA) hefur yfirumsjón með CORINE en Landmælingar Íslands (LMÍ) sjá um flokkunarvinnuna á Íslandi.

Ísland gerðist formlegur aðili að CORINE-verkefninu í júní 2007 en þá var byrjað á flokkun landsins fyrir árið 2006 og síðan voru breytingar sem urðu frá árinu 2000 kortlagðar. Þessari vinnu er nú lokið og liggja niðurstöðurnar fyrir. Aðgangur að þeim er opinn og hvers kyns notkun gagnanna er öllum heimil endurgjaldslaust.

Það hefur lengi verið vitað að náttúra Íslands er talsvert frábrugðin flestum öðrum löndum í Evrópu og jafnvel þótt víðar væri leitað. Það er samt ekki fyrr núna þegar niðurstöður CORINE-verkefnisins liggja fyrir að hægt er að setja fram ákveðnar tölur þessu til stuðnings, tölur sem hingað til hafa oft verið mjög ónákvæmar eða í mörgum tilvikum hreinlega alveg skort.

 

 

CORINE skýrsla -samantekt, nóvember 2009 (2,6 mb)

CORINE vefsjá 

 

Final Report (á ensku)

Lokaskýrsla CORINE, október 2009 (2 mb).

Hafið samband við Landmælingar Íslands lmi@lmi.is ef þið viljið fá myndirnar í fullri upplausn og ef þið hafið grun um villur í skýrslunni. Skýrslan er síðan uppfærð strax ef ábending um villu á við rök að styðjast.

Síðast uppfært 21. janúar 2010.

 

Corine yfirborðsflokkun


Netfang Lmi