Sérsvið
Sérsvið Landmælinga Íslands er einkum öflun grunngagna um landið, kortagerð, rekstur og viðhald á hnitakerfum landsins og uppbygging á grunngerð fyrir landupplýsingar á Íslandi. Auk þessara megin verkefna er hjá stofnuninni einnig unnið að stefnumótun á sviði landmælinga, kortagerðar og grunngerðar fyrir landupplýsingar, skráningu og miðlun landupplýsinga, gerð og notkun staðla á sviði landupplýsinga og víðtæku samstarfi hér á landi og erlendis. Þá leggja Landmælingar Íslands áherslu á miðlun þeirra gagna sem stofnunin vinnur og býr yfir en aukið aðgengi gagna veitir ný tækifæri til notkunar þeirra og hverskyns nýsköpunar.
Landshnitakerfi
Vegna legu Íslands á Atlantshafshryggnum er landris, landsig og landrek mikið. Því er gerð sameiginlegs hæðarkerfis fyrir Ísland mikilvæg, einnig er mikilvægt að tryggja nákvæmni landshnitakerfisins og að byggja upp GNSS-jarðstöðvarkerfið. Landmælingar Íslands vinnað að því að byggja upp GNSS-jarðstöðvakerfi sem nýtist við margvísleg verkefni þar sem þörf er á nákvæmum staðarákvörðunum t.d. á sviði rannsókna á náttúrunni, á sviði vöktunar á hreyfingum jarðar og vegna framkvæmda.
Rauntímaleiðréttingar Rinex mæligögn Grunnstöðvanet
Landshæðarkerfi
Eitt af mikilvægustu verkefnum Landmælinga Íslands er að byggja upp og viðhalda sameiginlegu hæðarkerfi fyrir allt Ísland með það að markmiði að leggja samfélaginu til áreiðanlegan grundvöll fyrir hæðarmælingar. Vinnu við fyrstu útgáfu af sameiginlegu landshæðar-kerfi er lokið en mælingarnar byggjast á fínhallamælingum meðfram þjóðvegum og hálendisvegum ásamt GPS- og þyngdarmælingum í hæðarnetinu. Um 3000 varanleg fastmerki hafa verið reiknuð út og þau má sjá í skýrslu um fyrstu útgáfu af Landshæðarkerfi Íslands.
Geoíða – láflötur Landshæðarkerfi
Landupplýsingar
Stafrænir landupplýsingagrunnar eru uppspretta margvíslegra verkefna hjá LMÍ og viðskiptavinum. Stofnunin mun leitast við að mæta kröfum notenda hvað varðar innihald, nákvæmni og birtingu gagnanna. Einnig mun stofnunin veita fræðslu og upplýsingar um verklag og aðferðir á sviði landupplýsingavinnslu. Helstu verkefni á þessu sviði eru:
-
Uppbygging og viðhald IS 50V gagnagrunnsins.
-
Gerð Corine gagnasafns um landnýtingu og landflokkun.
-
Uppbygging og viðhald IS 500V gagnagrunnsins.
Fjarkönnun
Með úrvinnslu og greiningu gervitunglamynda eða loftmynda má á hagkvæman hátt afla mikilvægra upplýsinga fyrir margs konar náttúrurannsóknir og umhverfisvöktun og hvers kyns kortagerð. Myndirnar eru í síauknum mæli meðhöndlaðar í landupplýsingakerfum þar sem þær eru tengdar öðrum landfræðilegum gögnum.
Landmælingar Íslands leitast við að efla og kynna fjarkönnun hér á landi m.a. með því að veita upplýsingar um mismunandi fjarkönnunargögn og nýtingarmöguleika þeirra.
Landmælingar Íslands hafa haft forystu um sameiginleg kaup innlendra stofnana á SPOT-5 gervitunglamyndum af öllu landinu. CORINE-flokkunarverkefnið og viðhald IS 50V gagnagrunnsins byggjast að drjúgum hluta á greiningu SPOT-5 mynda.










