LÍSU samtökin ásamt Landmælingum Íslands (LMÍ) og samstarfsaðilum hafa útbúið samræmt reitakerfi fyrir allt Ísland sem nefnist Reitakerfi Íslands. Í samráðsnefnd um gerð reitakerfisins sátu, auk aðila frá LÍSU og LMÍ, aðilar frá: Landlæknisembættinu, Náttúrufræðistofnun Íslands, Orkustofnun og Umhverfisstofnun. Auk þess fékk hópurinn aðstoð frá Samsýn ehf. Hér á eftir fer lýsing á tæknilegum atriðum og uppbyggingu kerfisins.
Hér er hægt að nálgast reitakerfið. Athugið að skjalið fyrir 100m reitina er um 1 GB.
Orðskýringar
Í textanum hér á eftir er heildarkerfið nefnt reitakerfið, hvert lag í því er nefnt net en einingar í netinu eru nefndar reitir.
Notagildi
Reitakerfi eru nauðsynlegt til að birta upplýsingar sem af einhverjum ástæðum geta ekki birst sem einstakar s.s. vegna persónuverndar, umfangs verkefnis eða nákvæmni þeirra upplýsinga sem fyrri liggja. Landmælingar Íslands hafa útbúið reitakerfi með mismunandi reitastærðum til að mæta mismunandi þörfum notenda við upplýsingamiðlun. Mælt er með notkun reitakerfisins m.a. þegar verið er að bera gögn saman milli stofnana.
Uppbyggingin
Reitakerfi Íslands samanstendur af sex mismunandi netum með misstórum reitum. Stærð reitanna í netunum eru 50 km, 10 km, 5 km, 1 km, 500 m og 100 m.
Hnitakerfið
Þar sem um var að ræða reiti fyrir saumlausan gagnagrunn, óháðan blaðskiptingu var ákveðið að hafa reitina ferningslaga. Einnig var ákveðið að hafa allar viðmiðanir í landshnitakerfinu með lambert kortvörpun, sem byggir á ÍSN93. Hliðar reita eru þá látnar ganga eftir hnitum sem enda á heilum tug kílómetra, t.d. 500.000 og sá næsti í 510.000. Þetta reitakerfi þekur allt landið en mjög auðvelt er að stækka það til að spanna hafsvæði í kringum landið.
Heiti reitanna
Hver reitur hefur nafn sem er einkvæmt og er byggt upp á stærðareiningu reitarins_austurhniti_norðurhniti, sem dæmi fyrir reiti í 50 km netinu er 50km_40_60. Reitir í 100 m netinu myndu hinsvegar hafa heiti eins og 100m_3175_3717
Miðlun og vörpun
Hægt er að nálgast íslenska reitakerfið hjá Landmælingum Íslands á veffangiðlmi@lmi.is. Reitakerfinu verður miðlað sem gagnagrunni eða sem „shape“ skrám. Hægt er að varpa hnitakerfinu í önnur hnitakerfi en það er útbúið í en við það getur útlit reitanna bjagast. Heiti reitanna skal þó halda sér.
