Landmælingar Íslands
> Skip Navigation Links
15. október 2008 11:50

Endurbætt þýðing á INSPIRE tilskipuninni

Hægt er að nálgast endurbætta þýðingu á INSPIRE tilskipuninni með því að smella hér en þar er hún t.d. sett upp með ensku útgáfunni, sem auðveldar lestur.

 

meira...
29. maí 2008 02:49

Ársskýrsla 2007

Ársskýrsla Landmælinga Íslands fyrir árið 2007 er komin út. Í ársskýrslunni er að finna ársreikninga stofnunarinnar auk þess sem upplýsingar eru um það helsta sem gert var á stofnuninni á árinu 2007.  

meira...
1. maí 2008 10:29

Örnefni mánaðarins er Brellur

Skemmtilegur fróðleikur frá Stofnun Árna Magnússonar.  Smellið hér. 

meira...
20. febrúar 2008 02:58

Starf landmælingasérfræðings

 

 

Laust er til umsóknar hjá Landmælingum Íslands starf við landmælingar. Leitað er eftir samviskusömum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni. Í starfinu felst m.a. umsjón landmælingaverkefna og vinna við uppbyggingu þeirrar starfsemi hjá Landmælingum Íslands, meðal annars í samvinnu við ýmsar stofnanir.

 

 

Ábyrgðar- og starfssvið:

-       Umsjón með mælingaverkefnum

-       Fagleg ábyrgð á verkefnum við landmælingar

-       Úrvinnsla GPS-mælinga

-       Úrvinnsla hallamælinga

-       Tölfræðileg greining á niðurstöðum mælinga

-       Vinna við uppbyggingu gagnagrunna á sviði landmælinga og miðlun upplýsinga

 

Hæfniskröfur:

-       Háskólamenntun á sviði landmælingafræða eða mikil reynsla á því sviði

-       Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

-       Reynsla af landmælingum og úrvinnslu mæligagna s.s. GNSS- og fínhallamælingar

-       Eiga auðvelt með samskipti við annað fólk

-       Góð tölvuþekking

-       Góð enskukunnátta

 

Umsóknir merktar starfi er greini frá menntun og reynslu skulu berast til Landmælinga Íslands fyrir 1. maí 2008.

 

Fyrirliggjandi umsóknir skulu staðfestar og merktar viðeigandi starfi. Öllum umsóknum verður svarað.

 

Ráðið verður í starfið frá og með 15. ágúst 2008 eða fyrr eftir samkomulagi og eru laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.

 

Nánari upplýsingar gefur Jensína Valdimarsdóttir starfsmannastjóri í síma 430 9011 eða jensina@lmi.is.

 

 

 

meira...
25. júní 2007 03:10

Ný gjaldskrá tekur gildi

Nú hefur ný gjaldskrá fyrir Landmælingar Íslands verið samþykkt af umhverfisráðuneytinu. Helstu breytingar eru þær að verð á IS 50V gagnagrunni stofnunarinnar hefur lækkað umtalsvert, svigrúm til birtinga á vef hefur verið aukið en einnig hefur framleiðslu loftmynda á pappír verið hætt.

 

Gjaldskráin tekur gildi 1. júlí 2007.

 

Hér má nálgast gjaldskrá LMÍ á pdf formi (61 kb).

 

meira...
20. október 2006 03:14

INSPIRE tilskipunin samþykkt

Þann 21. nóvember samþykktu Evrópuráðið og Evrópuþingið tilskipun sem kölluð er INSPIRE eða Infrastructure for Spatial Information in the European Community. Markmið tilskipunarinnar er að samræma og samnýta landfræðileg gögn í Evrópu og er vinnuhópur að störfum í umhverfisráðuneytinu sem mun skoða hvernig hugmyndafræði INSPIRE muni nýtast á Íslandi.

meira...
20. október 2006 03:13

Kvörtunum Loftmynda ehf vísað frá

Samkeppniseftirlitið úrskurðaði þann 19. desember 2006 í tveimur kvörtunum Loftmynda ehf. vegna starfsemi Landmælinga Íslands.

Annars vegar kvartaði fyrirtækið um að meintir einkakaupasamningar Landmælinga Íslands um afnot af hæðarlíkönum væru ólögmætir og hins vegar að ekki væri fjárhagslegur aðskilnaður á milli samkeppnisrekstrar LMÍ og verndaðs rekstrar.

meira...
Netfang Lmi