IS 50V stafrænn kortagrunnur af öllu Íslandi

Stafræni gagnagrunnurinn IS 50V er stöðugt í endurskoðun og vinnslu hjá Landmælingum Íslands. Hann er í notkun hjá mörgum stofnunum og sveitarfélögum auk þess að vera nýttur í kortaútgáfu og leiðsögukerfi fyrir bíla. Við endurskoðun gagnanna er stuðst við margvíslegar heimildir og gögn s.s. GPS mælingar á vegum, loftmyndir, SPOT-5 gervitunglamyndir og gögn frá öðrum stofnunum og sveitarfélögum.
Grunnurinn í IS 50V gagnasettinu samanstendur af 8 lögum. Skiptingin er eftirfarandi:
hæðarlínur og hæðarpunktar, mannvirki, mörk, samgöngur, vatnafar, strandlína, yfirborð og örnefni. Einnig fylgir hæðarlíkan með útgáfunni en það er unnið úr IS 50V hæðarlínunum. Með gögnunum fylgja lýsigögn (metadata). Til að skoða lýsigögn í ArcCatalog þarf að velja ISO í 'Stylesheet'.
Hægt er að fá gögnin á eftirfarandi formati: GDB, MDB, SHP og CAD. Þegar gögnin eru á CAD formati eru upplýsingarnar bak við gögnin takmarkaðar en lýsigögn (metadata) fylgja með á html formati.
IS 50V er nú í útgáfu 3.2.
Upplýsingar með útgáfu 3.2.
IS 50V gagnasettið er í keiluvörpun Lamberts og hnattstöðuviðmiðunin er ISN93 eða ISN2004. Öll lögin eru flokkuð eftir ÍST120:2007 staðlinum.
Jafnframt fylgir tvenns konar aukaefni með útgáfunni. Annars vegar gögn sem eru kölluð IS X og hins vegar CORINE (nánari upplýsingar um CORINE verkefnið er að finna hér).
Það sem tilheyrir IS X er skógalag sem kemur frá Skógrækt ríkisins, skurðalag sem var unnið í tengslum við CORINE-verkefnið og friðlýst svæði sem koma frá Umhverfisstofnun. Einnig eru í IS X samsett IS 50V nafnaleitarlög (úr eftirtöldum lögum: örnefni, mannvirki og samgöngur) og vefútgáfa IS 50V samgöngur línur þar sem búið er að taka út vegi sem eiga að vera lokaði að beiðni Umhverfisstofnunar, Landgræðslu ríkisins og samkvæmt verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs og punktalag frá Þjóðskrá Íslands sem sýnir staðsetningu staðfanga í þéttbýli (án heimilisfangs) með tengingu í fasteignaskráartöflu. Aukaefnið fylgir þegar allt landið er keypt eða fengið í áskrift en þeir sem fá minni svæði geta leitað til stofnunarinnar ef þörf er fyrir aukaefnið. IS X er nú í útgáfu 1.3.
IS 50V gagnagrunninn má skoða í vefsjá.
Gjaldskrá LMÍ