Sérsvið Landmælinga Íslands
Landmælingar Íslands sinna fjórum megin fræðigreinum sem eru landmælingar, fjarkönnun, landupplýsingavinnsla og kortagerð. 
Vegna legu Íslands á Atlantshafshryggnum er landris, landsig og landrek mikið. Því er mikilvægt að vinna að:
-
Gerð sameiginlegs hæðarkerfis fyrir Ísland.
-
Viðhalda og tryggja nákvæmni landshnitakerfisins.
-
Uppbyggingu GPS-jarðstöðvakerfis.
Með úrvinnslu og greiningu gervitunglamynda eða loftmynda má á hagkvæman hátt afla mikilvægra upplýsinga fyrir margs konar náttúrurannsóknir og umhverfisvöktun og hvers kyns kortagerð. Myndirnar eru í síauknum mæli meðhöndlaðar í landupplýsingakerfum þar sem þær eru tengdar öðrum landfræðilegum gögnum.
Landmælingar Íslands leitast við að efla og kynna fjarkönnun hér á landi m.a. með því að veita upplýsingar um mismunandi fjarkönnunargögn og nýtingarmöguleika þeirra.
Landmælingar Íslands hafa haft forystu um sameiginleg kaup innlendra stofnana á SPOT-5 gervitunglamyndum af öllu landinu. CORINE-flokkunarverkefnið og viðhald IS 50V gagnagrunnsins byggjast að drjúgum hluta á greiningu SPOT-5 mynda.
Landupplýsingavinnsla
Stafrænir landupplýsingagrunnar eru uppspretta margvíslegra verkefna hjá LMÍ og viðskiptavinum. Stofnunin mun leitast við að mæta kröfum notenda hvað varðar innihald, nákvæmni og birtingu gagnanna. Einnig mun stofnunin veita fræðslu og upplýsingar um verklag og aðferðir á sviði landupplýsingavinnslu. Helstu verkefni á þessu sviði eru:
Kortagerð
Landmælingar Íslands vinna að gerð stafrænna korta til miðlunar á vefnum, ekki síst til almennrar upplýsingagjafar og vegna stjórnsýslu opinberra aðila. Stofnunin miðlar einnig upplýsingum um verklag, staðla og aðferðir á þessu sviði.