Loftmyndasafnið er einstakt í sinni röð hér á landi og eru í því um 140.000 myndir frá tímabilinu 1937-2000. Til eru myndir af öllu landinu teknar á mismunandi tímum og hafa þær ómetanlegt samanburðar- og heimildagildi.
Elstu myndir safnsins eru frá dönskum landmælingamönnum 1937-1938, en síðan eru til myndir sem teknar voru á vegum Breta, Þjóðverja og Bandaríkjamanna á tímum heimsstyrjaldarinnar síðari. Nokkrir myndaflokkar til viðbótar frá erlendum aðilum eru í safninu en Landmælingar Íslands hafa tekið myndir af landinu næstum árlega síðan 1950. Flestar myndanna eru svarthvítar en nokkuð er þó til af litmyndum. Safnið er vel skráð í sérstakri loftmyndaskrá.
Hluti loftmynda Landmælinga Íslands er nú kominn á stafrænt form á vef stofnunarinnar. Óski viðskiptavinur eftir loftmynd sem ekki er komin á vefinn bjóða Landmælingar Íslands upp á þá þjónustu að senda honum skannaða mynd. Fyrir það er tekið tímagjald samkvæmt gjaldskrá. Þær myndir sem afhentar eru viðskiptavinum eru skannaðar í hágæðaskanna í 1200 punkta upplausn og afhentar á geisladiski eða settar á ftp LMÍ.
Hægt er að skoða fluglínur myndataka en flestar fluglínanna eru flokkaðar eftir blaðskiptingu Atlaskorta LMÍ.


