Unnið er að nýju heildarskipulagi fyrir öll gögn stofnunarinnar. Skilgreindir eru geymslustaðir endanlegra gagna til að auðvelda aðgengi að þeim og tryggja öryggi gagnanna. Jafnframt verður farið yfir aðra geymslustaði (S, Q og K drif).
Framkvæma áhættumat fyrir upplýsingaeignir stofnunarinnar þar sem fjallað eru um leynd, réttleika og tiltækileika. Á þennan hátt er hægt að meta verðmæti upplýsingaeigna, viðkvæmni þeirra og ógnir sem geta stefnt þeim í hættu.
Stjórna áhættu innan ákveðinna marka, með því að hanna, innleiða og starfrækja formlegt stjórnkerfi upplýsingaöryggis samkvæmt ÍST ISO/IEC 17799:2005.
Stofnunin er í samstarfi við tölvufyrirtæki, m.a. vegna afritunnarmála sem hafa vottun skv. upplýsingaöryggisstaðlinum.
Halda handbók með verkferlum og verklýsingum vegna meðferðar upplýsinga og viðhalda henni.
Allir starfmenn LMÍ fái þjálfun og fræðslu varðandi upplýsingaöryggi og ábyrgð þeirra hvað varðar upplýsingaöryggi.
Allir starfsmenn fylgi verklagi Skipulagshandbókar.