Landmælingar Íslands

Umhverfisstefna Landmælinga Íslands

 

Tilgangur

Umhverfisstefna Landmælinga Íslands (LMÍ) er til marks um að umhverfissjónarmið séu höfð að leiðarljósi í starfsemi stofnunarinnar. Forstjóri LMÍ hefur samþykkt þessa stefnu og styður við framkvæmd hennar.

 

Umfang

Umhverfisstefnan tekur til allrar starfsemi LMÍ þ.m.t. innkaupa, orkunotkunar, vinnuumhverfis og meðferðar efna og auðlinda.

Umhverfisstefnan tekur til allra þeirra sem starfa hjá LMÍ eða starfa samningsbundið fyrir stofnunina. Allir starfsmenn LMÍ og samningsbundnir aðilar bera ábyrgð á framkvæmd þessarar stefnu.

Einn starfsmaður hefur það hlutverk að minna á umhverfisstefnu LMÍ, aðstoða og hvetja aðra starfsmenn til að framfylgja henni.

 

Markmið

Markmið LMÍ með umhverfisstefnunni eru að:

Fylgja lögum og reglugerðum um umhverfismál.

Hafa umhverfissjónarmið að leiðarljósi við öflun aðfanga, þ.m.t. við fjárfestingar og útboð.

Draga úr mengun í starfsemi stofnunarinnar.

Tryggja starfsmönnum heilbrigð og örugg starfsskilyrði.

Miðlun upplýsinga, fræðsla

 

Leiðir að markmiðum

Leiðir LMÍ að ofangreindum markmiðum eru:

Útnefning starfsmanns sem er tengiliður vegna umhverfismála.

Að fylgjast með lögum og reglugerðum sem varða umhverfismál.

Við innkaup er leitast við að velja vörur sem eru merktar viðurkenndum umhverfismerkjum og forðast vörur sem innihalda skaðleg efni.

Við endurnýjun á bifreiðum eru valdar vistvænar útfærslur á bílum.

Að stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu eins og hægt er.

Eftirfylgni við orkusparnað og minnkun umhverfismengunar.

Að veita starfsmönnum reglulega fræðslu um umhverfismál.

Ábyrgð

Ábyrgð á framkvæmd umhverfisstefnu skiptist á eftirfarandi hátt:

Forstjóri LMÍ ber ábyrgð á umhverfisstefnunni og endurskoðar umhverfisnefnd hana árlega.

Forstjóri útnefnir einn starfsmann sem ber ábyrgð á innleiðingu stefnunnar með því að minna á hana reglulega, aðstoða og hvetja aðra starfsmenn til að framfylgja henni.

Allir starfsmenn LMÍ bera ábyrgð á að fylgja þeim vinnuferlum sem tryggja eiga framkvæmd umhverfisstefnunnar.

Samstarfsaðilar, verktakar og birgjar bera ábyrgð á að fylgja samningsbundnum vinnuferlum. Það á að tryggja að umhverfisstefnunni sé fylgt.

Allir starfsmenn LMÍ bera ábyrgð á að tilkynna frávik sem varða umhverfismál.

Endurskoðun

Þessi stefna skal endurskoðuð árlega og oftar ef þörf krefur til að tryggja að hún samrýmist markmiðum með rekstri Landmælinga Íslands.

 

Samþykki

Akranesi, 5. mars 2008

Fyrir hönd Landmælinga Íslands

_____________________________________________

Magnús Guðmundsson

Forstjóri

 

 

Netfang Lmi