Landmælingar Íslands

 Starfsmannastefna Landmælinga Íslands

 

Gildi: Traust, gæði, þekking, samstarf

 

Við vitum hver hlutverk og markmið Landmælinga Íslands eru og störfum samkvæmt stefnu stofnunarinnar.

Við sýnum traust í samskiptum og leitum sameiginlega að lausnum til að hrinda nýjum tækifærum og áskorunum í framkvæmd.

Við tökum mið af aðferðum gæðastjórnunar og leggjum áherslu á þekkingu sem forsendur framfara og nýsköpunar.

Við náum árangri með öflugu faglegu samstarfi innan stofnunar sem utan.

 

Starfsmannaval

    • Við vöndum starfsmannaval til að tryggja að rétt fólk sé á réttum stað 
      • Við tökum vel á móti nýju starfsfólki

      Starfsumhverfi

      • Við fellum starfsumhverfi að þörfum starfseminnar og gerum starfsvettvanginn eftirsóknarverðan 
          • Með gagnkvæmum sveigjanleika og fjölskylduvænum starfsskilyrðum samræmum við starf og einkalíf
          • Við leggjum kapp á öruggt upplýsingastreymi um málefni stofnunarinnar
          • Við gætum jafnræðis/jafnréttis í hvívetna
          • Við berum ábyrgð á góðum samskiptum, jákvæðni, virðingu og hrósi og ræðum það sem betur má fara
          • Við sýnum hvort öðru og stofnuninni trúnað

          Starfsþróun og fræðsla

          • Við leggjum áherslu á starfsþróun, faglega þekkingu og hæfni með endurmenntun og þjálfun
          • Við náum árangri með frumkvæði, metnaði og ábyrgð

          Heilbrigt líferni og góður félagsandi 

          • Við stuðlum að heilbrigðu líferni
          • Við stuðlum að góðum félagsanda 

           

          Netfang Lmi