Landmælingar Íslands

Jafnréttisstefna Landmælinga Íslands

 

Laus störf eru óháð kyni

Öll laus störf skulu standa jafnt konum sem körlum til boða og teljast því hvorki kvenna- né karlastörf. Þegar ráðið er í ný störf skal m.a. tekið tillit til kynjahlutfalls þannig að ekki halli á annað kynið. (Aðgerðaráætlun, liður 1).

 

Launajafnrétti

Samkvæmt kjarasamningum skulu greidd sömu laun fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf. Komi í ljós launamunur á jafn verðmætum og sambærilegum störfum skal vera hægt að rökstyðja hann á málefnalegum grundvelli gildandi stofnanasamninga. (Aðgerðáætlun, liður 2).

 

Starfsþjálfun og endurmenntun

Allt starfsfólk skal njóta sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar og fá þannig tækifæri til að auka þekkingu og hæfni m.a. vegna faglegrar þróunar og nýjunga í starfseminni. (Aðgerðáætlun, liður 3).

 

Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs

Stafsfólki býðst að skila vinnuframlagi með sveigjanlegum vinnutíma samkvæmt gildandi viðmiðunum og reglum. Með sveigjanlegum vinnutíma hefur starfsfólk betri möguleika en ella til að samræma starf og fjölskyldulíf. Foreldrar eru hvattir til að skipta með sér að vera heima vegna veikinda barna. Verðandi feður og mæður eru hvött til að nýta sér fæðingarorlof. (Aðgerðáætlun, liður 4).

 

Kynferðisleg áreitni og einelti

Kynferðisleg áreitni, einelti eða önnur ótilhlýðileg háttsemi er ekki liðin hjá Landmælingum Íslands. Í skipulagshandbók eru leiðbeiningar fyrir starfsfólk og stjórnendur ef bregðast þarf við vegna þessara mála. (Aðgerðáætlun, liður 5).

 

 

Samþykkt

21. febrúar 2008

 

Magnús Guðmundsson

forstjóri

Netfang Lmi