Stefnur Landmælinga Íslands
Sífellt er unnið að umbótum í starfsemi stofnunarinnar og hluti af því gæðastarfi sem hér fer fram er að marka sér stefnur á ýmsum sviðum. Starfsmannastefna Landmælinga Íslands hefur verið til í mörg ár enda mikilvæg fyrir starfsfólkið og þar með starfsemina. Einnig hefur verið unnið jafnt og þétt að heildstæðri umhverfisstefnu í gegnum árin.
Árið 2006 var hafist handa við innleiðingu á gæðastefnu og jafnframt byrjað að marka stefnu í upplýsingaöryggismálum. Stöðugt er unnið að skráningu verkferla til að auka gæði í starfseminni. Í lok ársins 2007 var innkaupastefnan kynnt. Hún tekur mið af innkaupastefnu ríkisins og er þannig hluti af innleiðingu hennar.
Farið er ítarlega yfir allar stefnur árlega, enda eru þær eru í stöðugri þróun eins og starfsemi stofnunarinnar.