Yfirlit um alþjóðlegt samstarf hjá Landmælingum Íslands
Landmælingar Íslands taka þátt í margvíslegu alþjóðlegu samstarfi þar sem norrænt samstarf vegur þyngst. Eftirfarandi er stutt yfirlit um þetta samstarf og hver eru helstu markmið þess.
Norrænt samstarf á sviði landupplýsinga og fasteignaskráningar
Landmælingar Íslands hafa ásamt Fasteignaskrá Íslands um langt árabil tekið virkan þátt í samstarfi norrænna korta- og fasteignastofnana. Þátttakendur í samstarfinu eru forstjórar stofnananna auk þess sem nokkrir millistjórnendur taka þátt á ársfundum og í verkefnum vinnuhópa. Starfið er skipulagt þannig að til grundvallar liggur samstarfssamningur þar sem markmið og fyrirkomulag eru skilgreind. Einu sinni á ári, að hausti, er haldinn ársfundur þar sem forstjórar og nánustu stjórnendur mæta en auk þess er haldinn minni fundur meðal forstjóranna (litli forstjórafundurinn) að vori þar sem eingöngu forstjórar mæta með fundarritara. Auk þessara funda eru starfandi nokkrir vinnuhópar sem hafa skilgreint hlutverk og verkefni sem ákveðin eru í samráði við forstjórana.
Norræna landmælingaráðið (Nordisk Kommission for Geodesy)
Landmælingar Íslands taka þátt í starfi norræna landmælingaráðsins. Þátttakendur eru sérfræðingar á sviði landmælinga frá norrænum kortastofnunum og nokkrum norrænum háskólum. Starfið er aðallega byggt á starfi vinnuhópa en auk þess fundar stjórn landmælingaráðsins um tvisvar á ári. Þetta samstarf hefur reynst Landmælingum Íslands mikilvægt til að hafa faglegan stuðning og aðgang að sérfræðingum á mjög afmörkuðu fræðisviði við uppbyggingu mælikerfa hér á landi. Finnska landmælingastofnunin (FGI) hefur verið mikilvægur samstarfsaðili Landmælinga Íslands á þessu sviði, ekki síst við útreikninga á nýju samræmdu hæðarkerfi fyrir landið.
EuroGeographics, samtök korta- og fasteignastofnana
EuroGeographics eru samtök korta- og fasteignastofnana í Evrópu. Í samtökunum eru 53 stofnanir frá 43 löndum og eru þau faglegur vettvangur korta- og fasteignastofnana í Evrópu. Landmælingar Íslands og Fasteignaskrá Íslands eru aðilar að EuroGeographics fyrir Íslands hönd en þátttaka íslensku stofnananna er mjög mikilvæg og tengist hagsmunagæslu Íslands og þekkingaröflun um hvað gerist í Evrópu á þessu sviði. Starf EuroGeographics spannar allt frá því að vera samráðsvettvangur landanna á fagsviðum stofnananna og farvegur fyrir mikilvæg samstarfsverkefni, s.s. landmælingar, gæðamál og höfundarrétt, yfir í gerð og vinnslu stafrænna gagnasafna af Evrópu. Einnig eru samtökin í virku samstarfi við Evrópusambandið. Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands var forseti samtakanna frá 2007-2009 (www.eurogeographics.org).
Arctic Spatial Data Infrastructure (Arctic SDI)
Á fundi forstjóra norrænna kortastofnana sem haldinn var í Illulissat á Grænlandi í september 2008 var samþykkt að beina því til Norðuskautsráðsins (Arctic Council) að kortastofnanir Norðurlandanna myndu hafa frumkvæði að því að byggja upp grunngerð fyrir landupplýsingar og kortamál (Arctic Spatial Data Infrastructure, Artic SDI) á norðurslóðum. Hugmyndafræði þessa verkefnis er meðal annars komin frá tilskipun Evrópusambandsins sem nefnist INSPIRE. Norðurskautsráðið fjallaði um málið á svokölluðum SAO (Senior Arctic Officials) fundi í Kaupmannahöfn í september 2009 og var tillaga um uppbyggingu á Arctic SDI samþykkt samhljóða. Á fundi forstjóra kortastofnana allra norrænu landanna sem haldinn var í Hönefoss í Noregi 25.-26. maí 2010 var ákveðið að Noregur, Svíþjóð, Danmörk og Finnland legðu til allt að eitt stöðugildi hver stofnun í verkefnið á næstu misserum auk þess sem það var ákveðið að forstjóri Landmælinga Íslands verði talsmaður og samræmingaraðili verkefnisins fyrir hönd allra norrænu kortastofnananna. Gert er ráð fyrir að upphafsfundur með fulltrúum allra 8 landanna sem eiga aðild að Arctic Council verði haldinn í september næstkomandi.
INSPIRE - grunngerð landupplýsinga
Landmælingar Íslands vinna náið að því með umhverfisráðuneytinu að undirbúa innleiðingu INSPIRE tilskipunarinnar á Íslandi. Lykilmarkmið INSPIRE er að landfræðilegar upplýsingar verði sem allra best aðgengilegar og beinist áhersla aðallega að upplýsingum sem þurfa að vera fyrir hendi til að fylgjast með og bæta ástand umhverfisins. Landmælingar íslands vinna stöðugt að því að laga starfsemi sína og vinnuferla að þeirri hugsun og þeim markmiðum sem fram koma í INSPIRE tilskipuninni og er það ekki síst gert í gegnum erlent samstarf þar sem reynslu er miðlað t.d. á árlegri INSPIRE ráðstefnu. Umhverfisráðuneytið á fulltrúa í INSPIRE Committee í Brussel. Í gegnum þá þátttöku er fylgst með setningu reglugerða (regulations) og innleiðingarreglna (IR, implementation rules) sem unnið er að á vegum Evrópusambandsins. Fulltrúi umhverfisráðuneytisins er forstjóri Landmælinga Íslands.
CORINE - samræming umhverfisupplýsinga
Landmælingar Íslands taka fyrir hönd umhverfisráðuneytisins þátt í svokölluðu CORINE-verkefni (CORINE: „Coordination of Information on the Environment“ eða „Samræming umhverfisupplýsinga“) sem er samevrópskt landflokkunarverkefni sem flest Evrópulönd taka þátt í. Verkefnið felur í sér kortlagningu á landgerðum samkvæmt ákveðnum staðli og er unnið með sömu aðferðum og á sama tíma í öllum þátttökulöndunum. Ísland gerðist formlegur aðili að CORINE-verkefninu í júní 2007 en þá var byrjað á flokkun landsins fyrir árið 2006 og síðan voru breytingar sem urðu frá árinu 2000 kortlagðar. Þessari vinnu er nú lokið og liggja niðurstöðurnar fyrir. Gert er ráð fyrir að vinna við uppfærslu gagna og upplýsinga fari fram á árinu 2012 og munu Landmælingar Íslands sinna því í nánu samstarfi við fjölmargar íslenskar stofnanir og sveitarfélög (http://www.lmi.is/sersvid/corine).
Bandaríska kortastofnunin National Geospatial-Intelligence Agency
Í gildi er samningur um landupplýsingar og kortamál á milli Varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna og utanríkisráðuneytis Íslands. Landmælingar Íslands fara með framkvæmd þessa samnings fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og er þar um að ræða samskipti og gagnaskipti við bandarísku herkortastofnunina sem nefnist National Geospatial-Intelligence Agency (https://www1.nga.mil/Pages/Default.aspx).
Rannsóknarverkefnið HELM - (Harmonised European Land Monitoring)
Landmælingar Íslands eru aðilar að stóru rannsóknarverkefni og tengslaneti þar sem markmiðið er að þróa sem bestar aðgerðir við að kortleggja landnotkun og landgerðir með samræmdum hætti í Evrópu. Verkefnið byggist mikið á því að þróa aðferðir við að túlka mismunandi yfirborð með notkun margvíslegra fjarkönnunargagna og að miðla þekkingu á því sviði. Verkefnið hefur nýlega verið samþykkt sem hluti af 7. rammáætlun Evrópusambandsins um rannsóknir og þróun http://www.gmes-network-of-users.eu/helm/.