Landmælingar Íslands
Landmælingar Íslands (kt. 710169-3309) eru ríkisstofnun í eigu ríkisins og heyrir hún undir umhverfisráðuneyti. Sögu stofnunarinnar má rekja aftur til aldamótanna 1900 er landmælingadeild danska herforingjaráðsins hóf kortagerð hér á landi. Landmælingar Íslands urðu sjálfstæð stofnun undir samgönguráðuneyti árið 1956 en hefur heyrt undir umhverfisráðuneyti frá árinu 1990. Landmælingar Íslands eru staðsettar á Akranesi í stjórnsýsluhúsi bæjarins að Stillholti 16-18 þar sem stofnunin tók til starfa 1. janúar 1999. Starfsmenn eru 28 og forstjóri er Magnús Guðmundsson.
Markmið og framtíðarsýn
Markmið Landmælinga Íslands er að tryggja að ávallt séu til aðgengilegar og áreiðanlegar staðfræðilegar og landfræðilegar grunnupplýsingar um allt Ísland.
Starfsemi Landmælinga Íslands er virðisaukaskattskyld þjónusta. Virðisaukaskattsnúmer stofnunarinnar er 16833.
Kennitala Landmælinga Íslands er 710169-3309.

Póstfang og heimilisfang Landmælinga Íslands er:
Landmælingar Íslands
Stillholti 16-18
300 Akranes
Sími 430 9000
Fax: 430 9090
Netfang: lmi@lmi.is
Veffang: www.lmi.is