Landmælingar Íslands
> Skip Navigation LinksLmi > Landmælingar Íslands > Fréttir
29. maí 2009 12:02

Skandinavískt staðlasamstarf

Eitt af föstum verkefnum Landmælinga Íslands er innleiðing og þróun staðla á sviði landupplýsinga. Stofnunin tekur þátt í samstarfi Norðurlandaþjóðanna, þar sem fjallað er um þróun ISO TC 211 staðlanna en það eru evrópskir tæknistaðlar á sviði landupplýsinga.

 

Í byrjun mánaðarins fór fram árlegur samstarfsfundur norræna staðlahópsins og fór hann í þetta skipti fram hér á landi. Á fundinum voru 10 aðilar frá ýmsum skandinavískum stofnunum sem tengjast staðlaverkefnum.  

Netfang Lmi