Landmælingar Íslands vilja að gögn þeirra séu notuð af sem flestum. Árið 2011 var sú ákvörðun tekin að bjóða IS 500V gögn stofnunarinnar gjaldfrjáls.
Hægt er að fá gögnin afhent gegn þjónustugjaldi sem er kr. 3850,- án vsk og er gerður afnotasamningur þar um.
Ef birta á gögnin og/eða dreifa þeim þarf að fá leyfi hjá Landmælingum Íslands og greiða birtingargjald fyrir.
Hægt er að fá gögnin á gdb, shp og dwg formi.
Áhugasamir sendi tölvupóst á lmi@lmi.is.