Landmælingar Íslands
> Skip Navigation LinksLmi > Landmælingar Íslands > Almennir skilmálar

Almennir skilmálar

Landfræðilegar upplýsingar og gögn Landmælinga Íslands

 

1. gr. Almennt ákvæði

Landmælingar Íslands (LMÍ) varðveita og framleiða landfræðilegar upplýsingar (gögn) um Ísland. LMÍ veita aðgang að þessum upplýsingum og  taka enn fremur að sér sérhæfða þjónustu fyrir viðskiptavini á grundvelli laga um landmælingar og grunnkortagerð nr. 103/2006.

 

2. gr. Gjaldskrá

Af sölu, birtingu og fyrir útgáfu landfræðilegra upplýsinga frá LMÍ innheimtir stofnunin gjöld samkvæmt gildandi gjaldskrá hverju sinni. LMÍ áskilur sér rétt til breytinga á gildandi gjaldskrá í samræmi við ákvæði laga þar að lútandi.


3. gr. Höfundaréttur

Ríkið er eigandi að öllum réttindum sem LMÍ hafa öðlast. Stofnunin gætir hagsmuna ríkisins á sviði höfunda- og afnotaréttar á öllu því efni sem hún hefur eignast, unnið eða gefið út. Um höfundarétt gilda að öðru leyti ákvæði höfundalaga nr. 73/1972 með síðari breytingum.


4. gr. Samningar um afnot eða þjónustu

Að meginstefnu er um að ræða fjórar leiðir við afgreiðslu gagna og þjónustu:

 

1. Kaup - sala. Þegar keyptar eru af LMÍ eða dreifingaraðila stofnunarinnar landfræðilegar upplýsingar sem útbúnar hafa verið sérstaklega til dreifingar til almennra nota fyrir viðskiptavini.

2. Afnotasamningur. Þegar gerður er sérstakur samningur við notanda um leyfi honum til handa til afnota af gögnum LMÍ. Slíkt leyfi veitir notanda takmarkað óframseljanlegt leyfi til notkunar á gögnum stofnunarinnar til sérstakra eða sérgreindra afnota.

3. Áskriftarsamningur. Þegar gerður er sérstakur samningur við notanda um tímabundin afnot af gögnum stofnunarinnar til sérstakra eða sérgreindra afnota. Samningsaðili fær til afnota nýjustu útgáfu af umræddum gögnum stofnunarinnar á hverjum tíma nema um annað sé samið sérstaklega.

4. Samningur um sérhæfða þjónustu. Óski viðskiptavinur eftir þjónustu frá  LMÍ er gengið frá sérstökum samningi þar að lútandi og er í slíkum tilvikum innheimt tímagjald fyrir vinnu skv. tímagjaldi sem kveðið er á um í gildandi gjaldskrá á hverjum tíma.

 

Þessir skilmálar eru hluti af þeim samningum sem gerðir eru.


5. gr. Notkunarleyfi og fjöldi notkunarleyfa

Þegar gengið er frá samningi við viðskiptavin um afnot af gögnum stofnunarinnar fær hann notkunarleyfi sem er í samræmi við þau afnot sem hann hefur í hyggju, t.d. útgáfa og birting gagna.

Notkunarleyfi samkvæmt afnota- og áskriftarsamningi veitir aðeins leyfishafa eða starfsmönnum hans heimild til að nota gögnin og er leyfisþega óheimilt að afhenda þriðja aðila afrit eða veita þriðja aðila aðgang að framantöldum stafrænum gögnum eða afleiddu efni, nema með skriflegu leyfi LMÍ.

Notkunarleyfi skiptast í þrjá flokka, þ.e. almennt leyfi, viðskiptaleyfi fyrir einn notanda eða viðskiptaleyfi fyrir fleiri notendur á sama neti.


6. gr. Breytt afnot

Óski viðskiptavinur eftir því að nýta efni frá LMÍ með öðrum hætti en kveðið er á um í samningi skal hann sækja um heimild til breyttra afnota til stofnunarinnar.


7. gr. Áletrun

Gögn sem eiga uppruna sinn að rekja til gagna sem stafa frá LMÍ skulu merkt á eftirfarandi hátt:

© Landmælingar Íslands.

Þegar fleiri en einn aðili eiga höfundarétt að endanlegri útgáfu kortagagna skal samráð haft við LMÍ um það hvernig merkja skuli gögn sem stafa frá stofnuninni.


8. gr. Endurútgáfur

Leyfi til útgáfu og birtingar á efni frá LMÍ gildir aðeins fyrir eina prentun. Sækja þarf sérstaklega um leyfi fyrir hverja endurútgáfu. Í umsókn skal geta um dagsetningu og vísa til upphaflegs leyfis. Verð og skilmálar endurútgáfa eru tilgreindir að nýju og leyfisgjöld ákveðin samkvæmt gildandi gjaldskrá á hverjum tíma. Leyfi til endurprentunar er að öllu jöfnu veitt svo fremi sem greiðsla fyrir fyrri útgáfu hafi verið innt af hendi. Endurútgáfur skulu bera áletrun með sama hætti og upprunaleg útgáfa.


9. gr. Móttökuprófun

Við móttöku gagna frá LMÍ skoðar viðskiptavinur þau. Ber honum að tilkynna LMÍ innan mánaðar frá móttöku um villur eða annað sem hann gerir athugasemdir við. Berist ekki athugasemdir innan þess tíma verður litið svo á að hann hafi skoðað gögnin og samþykkt þau frá og með þeim degi.


10. gr. Afritun gagna

Viðskiptavinur má afrita gögn frá LMÍ yfir í tölvukerfi og framleiða afleidd, stafræn gögn eða afurðir af gögnum LMÍ. Viðskiptavinur má einungis nota framantalin gögn sjálfur eða starfsmenn hans. Ekki má afhenda þriðja aðila afrit eða veita þriðja aðila aðgang að stafrænum gögnum frá LMÍ og/eða afleiddum gögnum, nema með sérstökum skriflegum samningi þar að lútandi.


11. gr. Riftun

Ef um er að ræða alvarleg eða endurtekin brot viðskiptavinar á skyldum sínum skv. samningi, skilmálum og/eða fylgiskjölum er LMÍ heimilt að rifta samningnum fyrirvaralaust án þess að það hafi nokkur áhrif á bótarétt stofnunarinnar vegna slíks brots.


12. gr. Samningstímabil

Afnota- og áskriftarsamningar eru ótímabundnir. Heimilt er að segja afnotasamningum upp með þriggja mánaða fyrirvara að liðnu ári frá undirskrift samningsins en áskriftarsamningum að loknum þremur árum. Uppsögn skal send skriflega til LMÍ. Við samningslok fellur niður réttur viðskiptavinar til þess að nota umsamin gögn frá LMÍ til annars en innanhússnota.


13. gr. Framsal

Viðskiptavini er óheimilt að framselja samning við LMÍ nema að fengnu skriflegu samþykki stofnunarinnar.

 

14. gr. Ábyrgð

LMÍ bera enga ábyrgð á því hvort afhent gögn henta til þeirra nota sem viðskiptavinur ætlast til. Öll gögn eru afhent eins og þau eru á hverjum tíma í gagnasöfnum LMÍ þegar afhending fer fram. Vegna aðgerða íslenskra stjórnvalda til að koma í veg fyrir akstur utan vega og við að takmarka eða koma í veg fyrir umferð á ákveðnum svæðum landsins þá taka LMÍ það fram að notendur afhentra gagna bera sjálfir ábyrgð á að fylgjast með því ef og þegar vegum og slóðum er lokað tímabundið eða að fullu fyrir almennri umferð. Slíkar aðgerðir stjórnvalda ganga alltaf lengra en upplýsingar um vegi og slóða í gagnagrunnum LMÍ á hverjum tíma. Viðskiptavini er kunnugt um að gæði gagnanna eru mismunandi eftir uppruna, bæði hvað varðar nákvæmni og áreiðanleika og bera LMÍ ekki ábyrgð á afleiðingum sem hljótast kunna af því. LMÍ eru því ekki ábyrgar fyrir beinu eða óbeinu tjóni sem viðskiptavinur kann að verða fyrir vegna notkunar gagna frá LMÍ eða afleiddra gagna nema að því marki sem kynni að falla undir lög um skaðsemisábyrgð nr. 25/1991. Að öðru leyti undanþiggja LMÍ sig tjóni að því marki sem lög leyfa.

Hvers konar ábyrgð vegna afhendingar eða notkunar gallaðra gagna takmarkast við uppsett gjald fyrir afhendingu hinna gölluðu gagna.

Viðskiptavinur ber alla ábyrgð gagnvart LMÍ á vinnslu og notkun þriðja aðila á gögnunum.


15. gr. Óviðráðanleg atvik (Force Majeure)

Hvorugur samningsaðili ber ábyrgð á hvers kyns töfum af óviðráðanlegum tilvikum (Force Majeure) hvað snertir að inna af hendi skyldur sínar samkvæmt samningi þessum.


16. gr. Varnarþing

Komi upp ágreiningur milli aðila samnings þessa um túlkun einstakra ákvæða skal málið rekið fyrir Héraðsdómi Vesturlands.

 

17. gr. Staðfesting

Til staðfestingar á skilmálum þessum og móttöku á gögnum og/eða væntanlegri þjónustu rita viðskiptavinur og fulltrúi LMÍ undir samning. Farist undirritun fyrir af hálfu viðskiptavinar við móttöku gagna skal litið svo á að greiðsla gjalds skv. gjaldskrá sé samþykki fyrir skilmálum sem hér koma fram ásamt afhendingu á gögnum eða þjónustu.

Að öðru leyti en hér er kveðið á um gilda um samninga LMÍ og viðskiptavina stofnunarinnar meginreglur samninga- og kröfuréttar um skuldbindingagildi samninga, eftir því sem við á hverju sinni.

Samningar eru númeraðir og gerðir í tveimur eintökum, eitt handa hvorum aðila.

Netfang Lmi