Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar
Landmælingar Íslands hafa opnað nýja vefsíðu sem fjallar um grunngerðfyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandi og INSPIRE. Þar má m.a. finna tengla í áhugaverðar vefsíður sem tengjast grunngerð fyrir landupplýsingar og INSPIRE tilskipun ESB. Vefsíðan er á slóðinni inspire.lmi.is
IS 50V útgáfa 3.2
Út er komin útgáfa 3.2. af IS 50V gagnagrunninum en nýjar útgáfur með uppfærslum koma nú út tvisvar á ári.
Gagnagrunnurinn er helsti gagnagrunnur Landmælinga Íslands.
Nánari upplýsingar um gögnin er að finna í PDF skjali um útgáfuna (1,3 mb).
Landshæðarkerfi Íslands
Óhætt er að segja að stórum áfanga sé náð með útkomu skýrslu sem inniheldur allar punktlýsingar fyrsta sameiginlega landshæðarkerfis Íslands.
Skýrslunni sem er rúm12mb á pdf formi erhægt að hlaða niður. Seinna á þessu ári kemur út ítarleg tækniskýrsla.
Í þessari skýrslu eru allar punktlýsingar og kort sem sýna staðsetningu punktanna auk þess sem stutt yfirlit er yfir framkvæmd mælinganna.
Ný stefnumótun fyrir Landmælingar Íslands 2011-2015
Ný stefna LMÍ hefur verið samþykkt fyrir tímabilið 2011-2015. Allir starfsmenn tóku þátt í stefnumótuninni sem var leidd af fjögurra manna stýrihópi starfsmanna í samstarfi við Eyþór Ívar Jónsson sérfræðing í stefnumótun.
Nákvæmni, notagildi og nýsköpun
Í nýrri framtíðarsýn fyrir Landmælingar Íslands segir að „Landmælingar Íslands hafi forystuhlutverk og stuðli að samvinnu við að tryggja tilvist og aðgengi að traustum landupplýsingum um Ísland og stuðli að notkun þeirra á fjölbreyttan og hagkvæman hátt, ekki síst í þágu umhverfismála.“ Einnig segir að „Landmælingar Íslands séu framsækin þekkingarstofnun í stöðugri þróun þar sem nákvæmni, notagildi og nýsköpun eru grundvöllur starfseminnar“.
Nánar má lesa um stefnumótunina hér.
Kortasafn Landmælinga Íslands
Landmælingar Íslands búa yfir stóru og merkilegu kortasafni og hafa rúmlega 2500 kort verið skráð í kortasafnið. Stærstur hluti safnsins eru kort sem stofnunin hefur gefið út frá því að hún var sett á laggirnar árið 1956, en einnig er mikið af kortum frá kortlagningu Dana hér á landi á tímabilinu 1900 - 1939. Í safninu eru líka útgáfur annarra aðila sem í sumum tilfellum eru byggðar á gögnum stofnunarinnar. Jafnt og þétt er unnið að því að skanna þessi gögn til að tryggja að afrit séu til af gögnunum og til að bæta aðgengi að þeim. Búið er að skanna stóran hluta safnsins og útlit er fyrir að verkinu verði lokið á árinu 2009. Skoða hér
|