Kortasafn Landmælinga Íslands
Landmælingar Íslands búa yfir stóru og merkilegu kortasafni. Rúmlega 2500 kort hafa verið skráð í safnið. Stærstur hluti þess eru kort sem Landmælingar Íslands hafa gefið út frá því að stofnunin var sett á laggirnar árið 1956 en einnig er mikið af kortum frá kortlagningu Dana hér á landi á tímabilinu 1909-1939. Í kortasafninu eru líka útgáfur annarra aðila sem í sumum tilfellum eru byggðar á gögnum stofnunarinnar. Á undanförnum mánuðum hefur jafnt og þétt verið unnið að því að skanna þessi gögn til að tryggja að afrit séu til af gögnunum og til að bæta aðgengi allra að þeim. Búið er að skanna stóran hluta safnsins og útlit er fyrir að verkinu verði lokið á árinu 2009.
Veflausnin var þróuð í þeim tilgangi að bæti aðgengi almennings að kortunum. Á þessum vef er hægt að fá upplýsingar um kortin og einnig skoða kortin sjálf. Í hverri viku bætast ný kort inn á vefinn, en þau eru birt um leið og skönnun kortanna er lokið. Hægt verður að skoða öll kort sem Landmælingar Íslands eiga útgáfurétt af. Þetta er fyrsta útgáfa vefsins og eru allar ábendingar vel þegnar.

Smellið hér til að fara á kortasafn Landmælinga Íslands