IS 500V
Stafræni gagnagrunnurinn IS 500V er heildargagnasett af landinu sem er í notkun í fjölmörgun stofnunum og fyrirtækjum hér á landi. Gagnagrunnurinn er byggður upp af 6 lögum sem eru: hæðarlínur, samgöngur, vatnafar, strandlína, mannvirki (þéttbýli) og stjórnsýslumörk.
Grunnurinn er endurskoðaður árlega en mest áhersla er lögð á uppfærslu mannvirkja (þéttbýlis), stjórnsýslumarka og vega.
Í hæðarlínunum er bæði línulag og flákalag sem sýna hæðarlínur á 100 m bili. Í línulaginu
er einnig hægt að sjá hvort hæðarlínur eru á jökli eða á landi.
Í samgöngulaginu eru helstu vegir landsins sýndir. Vegirnir eru m.a. flokkaðir eftir yfirborði og vegnúmerum.
Vatnafarið skiptist í tvö lög; línur og fláka. Í línulaginu eru ár. Flákalagið sýnir jökla, stöðuvötn og ár. Nöfn hafa verið sett á helstu fyrirbærin í flákalaginu.
Strandlínan er bæði sem línulag og flákalag.
Mannvirkjalagið er punktalag sem sýnir staðsetningu 98 þéttbýlisstaða og eru til upplýsingar um mannfjölda á hverjum stað. Þær upplýsingar koma frá Hagstofu Íslands.
Stjórnsýslulagið skiptist í línur og fláka. Línurnar eru flokkaðar eftir umdæmum sýslumanna og sveitarfélaga. Einnig er hægt að sjá hvort markalínurnar eru vissar eða óvissar. Flákalögin eru þrjú; eitt sýnir bæði umdæmi sýslumanna og sveitarfélög landsins og svo eru umdæmi sýslumanna í sér flákalagi sem og sveitarfélögin. Upplýsingar um mannfjölda í sveitarfélögum koma frá Hagstofu Íslands og fylgja þær sveitarfélagalaginu.
Nánar um IS 500V


