Um grunngerð
Í maí 2011 voru samþykkt á Alþingi lög nr. 44/2011 um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar. Markmið laganna er að byggja upp og viðhalda aðgengi að stafrænum landupplýsingum á vegum stjórnvalda en lögin tengjast INSPIRE-tilskipun Evrópusambandsins. Samkvæmt lögunum er grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar: „Tækni, stefnur, staðlar og mannauður sem þarf til að afla stafrænna landupplýsinga, vinna úr þeim, varðveita, miðla og auðvelda notkun þeirra.“
Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar byggir á nokkrum meginreglum INSPIRE:
- Gögnum skal einungis safnað einu sinni
- Gögnum skal vera haldið við þar sem hægt er að gera það á sem hagkvæmastan hátt;
- Einfalt yfirlit verði til yfir hvaða gögn og þjónusta er í boði (lýsigögn);
- Gögn ætti að nota frá upprunastað sínum;
- Tryggt sé að hægt sé að nota gögn frá mörgum í mismunandi samhengi Grunngerðarkönnun 2012 Grunngerðarfréttir
Landupplýsingagátt
Landupplýsingagáttin (e: geoportal) er vefsvæði þar sem notendur geta leitað eftir lýsigögnum um landupplýsingar opinberra aðila. Um leið tengist hún INSPIRE-verkefni Evrópusambandsins. Landupplýsingagáttin er opin fyrir opinbera aðila til skráningar.
Undanfari gáttarinnar var Landlýsing. Þar er enn hægt að skoða gamlar lýsigagna skráningar.
Skráning-leiðbeiningar Landupplýsingagátt
Lög og reglugerðir
Lög um Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar voru samþykkt á Alþingi 11. maí 2011. Lögin eru að mestu byggð á INSPIRE tilskipun Evrópusambandsins og snúa að því að auka aðgengi að landupplýsingum á Íslandi og í Evrópu. Lögunum um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar fylgja ýmsar reglugerðir sem ýmist hafa verið ritaðar eða unnið er að s.s. um lýsigögn og þau gögn sem lögin ná yfir.
INSPIRE
Lykilmarkmið INSPIRE-tilskipunarinnar Evrópusambandsins er að bæta og auka aðgengi að landfræðilegum upplýsingum. Áherslan beinist aðallega að upplýsingum sem þurfa að vera fyrir hendi til að hægt sé að fylgjast með og bæta ástand umhverfisins og eru þar með taldir þættir vatns, jarðvegs og náttúrulegs landslags.
INSPIRE er ekki ætlað að tryggja að fram fari öflun nýrra gagna en þess í stað er tilskipuninni ætlað að nýta sem best tækifæri til að nota gögn sem þegar eru fyrir hendi með því að láta skrá þau, taka í notkun þjónustu sem stefnir að því að gera staðbundin gögn aðgengilegri og gagnvirkari fyrir fleiri aðila og með því að fást við hindranir sem koma í veg fyrir að staðbundin gögn séu nýtt.






