Landmælingar Íslands
> Skip Navigation LinksLmi > Fróðleikur > Loftmyndasala

Loftmyndasala

 

Loftmyndasafnið er einstakt í sinni röð hér á landi og eru í því um 140.000 myndir frá tímabilinu 1937-2000. Til eru myndir af öllu landinu teknar á mismunandi tímum og hafa þær ómetanlegt samanburðar- og heimildagildi.

Elstu myndir safnsins eru frá dönskum landmælingamönnum 1937-1938, en síðan eru til myndir sem teknar voru á vegum Breta, Þjóðverja og Bandaríkjamanna á tímum heimsstyrjaldarinnar síðari. Nokkrir myndaflokkar til viðbótar frá erlendum aðilum eru í safninu en Landmælingar Íslands hafa tekið myndir af landinu næstum árlega síðan 1950.  Flestar myndanna eru svarthvítar en nokkuð er þó til af litmyndum. Safnið er vel skráð í sérstakri loftmyndaskrá. 

 

Óski viðskiptavinur eftir loftmynd bjóða Landmælingar Íslands upp á þá þjónustu að senda honum skannaða sýnismynd í lágri upplausn áður en ákvörðun um kaup eru tekin.  Þær myndir sem afhentar eru viðskiptavinum eru skannaðar í hágæðaskanna í 1200 punkta upplausn og afhentar á geisladiski eða settar á ftp LMÍ.

 

Nokkrar myndir hafa einnig verið settar á svo kallaðan Loftmyndaskjá þar sem hægt er að skoða þær og vista til eigin nota og verður fleiri myndum bætt við þegar fram líða stundir.  Einnig er hægt að skoða fluglínur allrar myndatöku frá upphafi en þær fluglínur eru flokkaðar eftir blaðskiptingu Atlaskorta LMÍ. 

 

 

 

Netfang Lmi