EuroGeographics

EuroGeographics eru samtök korta- og fasteignastofnana í Evrópu. Í samtökunum eru 50 stofnanir frá 43 löndum og eru þau faglegur vettvangur korta- og fasteignastofnana í Evrópu. Landmælingar Íslands og Fasteignamat ríkisins eru aðilar að EuroGeographics fyrir Íslands hönd en þátttaka íslensku stofnananna er mjög mikilvæg og tengist hagsmunagæslu Íslands og þekkingaröflun um hvað gerist í Evrópu á þessu sviði. Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands var forseti samtakanna frá október 2007 til október 2009. Núverandi forseti samtakanna er Dorine Burmanje forstjóri Fasteignaskrár Hollands.
Starf EuroGeographics spannar allt frá því að vera samráðsvettvangur landanna á fagsviðum stofnananna og farvegur fyrir mikilvæg samstarfsverkefni, s.s. landmælingar, gæðamál og höfundarétt, yfir í gerð og vinnslu stafrænna gagnasafna af Evrópu. Einnig eru samtökin í virku samstarfi við Evrópusambandið þrátt fyrir að vera ekki ein af stofnunum þess.
INSPIRE tilskipun Evrópusambandsins um uppbyggingu og grunngerð landupplýsinga í Evrópu er ofarlega á baugi hjá EuroGeographics um þessar mundir. Markmið tilskipunarinnar er að landfræðileg gögn verði aðgengileg á öllum stjórnsýslustigum innan ESB til þess að fylgja betur eftir stefnumörkun á ýmsum sviðum. Einnig er lögð mikil áhersla á að samnýting verði innan stjórnsýslunnar og að aðgangur almennings að upplýsingum um umhverfismál verði tryggður.
Á vettvangi EuroGeographics eru mörg önnur brýn verkefni framundan þar sem kort, upplýsingar um fasteignir og aðrar landupplýsingar koma við sögu. Slík gögn þurfa að uppfylla ákveðin gæði og vera aðgengileg hratt og vel t.d. þegar náttúruhamfarir, mengunarslys eða hryðjuverk eiga sér stað. Einnig eru landupplýsingar orðnar hluti af daglegu lífi margra t.d. við notkun þeirra á netinu og í gegnum farsíma. Mikilvægt er að hvorki landamæri né mismunandi menning eða skipulag í einstökum löndum Evrópu hindri notkun og hagnýtingu upplýsinganna fyrir almenning og stjórnvöld.
Þess má einnig geta að gögn um Ísland eru komin inn í þrjú af megin gagnasöfnum EuroGeographics; EuroBoundaryMap sem sýnir stjórnsýslumörk um alla Evrópu, EuroGlobalMap sem er stafrænn kortagrunnur af Evrópu í mælikvarða 1:1 000 000 og EuroRegionalMap sem er stafrænn kortagrunnur af allri Evrópu í mælikvarða 1:250 000. Í undirbúningi er sameiginlegt hæðarlíkan af Evrópu sem mun nefnast EuroDEM.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu EuroGeographics.
Gerist áskrifendur að fréttabréfi EuroGeographics.
Ársskýrsla EuroGeographics.
Bæklingur um starfsemi EuroGeographics.
Myndbönd frá EuroGeographics
Kynning á EuroGeographics.
Myndband um EuroGeoNames.
Ársskýrslur EuroGeographics:
2008, PDF
2006-2007, PDF