INSPIRE KEN (Knowledge Excange Network) á vegum Eurogeographics samtakanna (samtök korta og fasteignastofnana í Evrópu) hélt vinnufund 05 – 06 febrúar 2013, í París, um „Aðferðafræði við að til að innleiða INSPIRE kröfur“. Fundurinn var vel sóttur en einnig gátu þátttakendur tekið þátt í gegnum veftengil. Hér fyrir neðan er samantekt úr fundargerð fundarins. Bakgrunnur [...]
Hvernig skráir maður lýsigögn?
Loksins loksins er búið að uppfæra leiðbeiningarnar um hvernig eigi að skrá lýsigögn og viljum við hvetja fólk til að prófa að skrá þau í Landupplýsingagáttina. Um er að ræða 13 blaðsíðna skjal þar sem því er lýst hvernig skrá eigi lýsigögn þannig að þau uppfylli kröfur INSPIRE. Einnig eru skráningaratriði útskýrð. Leiðbeiningarnar voru skrifaðar [...]
Mikil aðsókn í gjaldfrjáls gögn Landmælinga Íslands
Þann 23. janúar síðastliðinn voru öll stafræn kort og landupplýsingar í vörslu Landmælinga Íslands gerð gjaldfrjáls. Gögnin eru notuð við ýmis verkefni á vegum stofnana ríkisins s.s. við skipulagsmál, náttúruvernd, náttúruvá, orkumál, rannsóknir og opinberar framkvæmdir en einnig gagnast þau almenningi og fyrirtækjum með margvíslegum hætti. Töluverður undirbúningur hefur farið fram hjá Landmælingum Íslands, við að [...]
Fréttabréfið Kvarðinn er komið út
Fyrsta tölublað Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands, á árinu 2013 er komið út. Auk fjölbreyttrar umfjöllunar um starfsemi stofnunarinnar er þar að finna grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra um gjaldfrelsi gagna Landmælinga Íslands.
Gjaldfrjáls gögn
Stafræn kort og landupplýsingar í vörslu Landmælinga Íslands hafa frá og með 23. janúar 2013 verið gerð gjaldfrjáls. Sjá http://www.lmi.is/stafraen-gogn/
Stafræn kort og landupplýsingar LMÍ gerð gjaldfrjáls
Stafræn kort og landupplýsingar í vörslu Landmælinga Íslands hafa frá og með 23. janúar 2013 verið gerð gjaldfrjáls, samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra. Gögnin eru notuð við ýmis verkefni á vegum stofnana ríkisins s.s. við eignaskráningu, skipulagsmál, náttúruvernd, náttúruvá, orkumál, rannsóknir og opinberar framkvæmdir en einnig gagnast þau almenningi og fyrirtækjum með margvíslegum [...]
Góð afkoma á árinu 2012
Rekstur Landmælinga Íslands gekk vel árið 2012, þrátt fyrir mikið aðhald og hagræðingu. Heildarvelta stofnunarinnar var um 263 milljónir króna, þar af voru sértekjur 21, 4 milljónir og framlag ríkisins 242 milljónir. Við gerð rekstraráætlunar eru allar ákvarðanir teknar með hliðsjón af fjárlögum og ávallt er farið ofan í alla sauma, verkefni metin og þeim [...]
Af þýðingum og furðunöfnum.
Nú í byrjun árs höfum við hjá LMÍ tekið þýðingu landupplýsingagáttarinnar traustataki og ætlum okkur að vera komin langleiðina með að klára þýðinguna fyrir vormánuði. Ekki er sopið þó í ausuna sé komið er máltæki sem vel á við því vel yfir 3.500 textastrengi þarf að þýða og ekki eru til viðunandi þýðingar á mörgum [...]
Ný jarðstöð á Snæfellsnesi
Landmælingar Íslands reka net svokallaðra GPS/GNSS jarðstöðva, sem safna stöðugt staðsetningargögnum og geta þannig m.a. gefið upplýsingar um jarðskorpuhreyfingar. Mæligögn frá stöðvunum streyma svo til stofnunarinnar í rauntíma og eru aðgengileg á vef hennar. Á Snæfellsnesi var árið 2011 hafist handa við að setja upp stöð á hól einum nálægt Gufuskálum. Sú uppsetning gekk vel [...]
Gleðilegt nýár!
Landmælingar Íslands óska landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þakka samskiptin á liðnu ári.


