Fimmtudaginn 8. janúar 2009 voru 10 ár liðin frá því Landmælingar Íslands fluttu á Akranes. Af því tilefni var stofnunin með opið hús þar sem starfsmenn kynntu þau verkefni sem unnið er að. Alls komu um 400 manns í heimsókn, skoðuðu sig um og gæddu sér á kaffi og kleinum sem boðið var uppá í [...]
Vinningshafi getraunarinnar fundinn
Mikil þátttaka var í verðlaunagetrauninni á opnu húsi í dag en alls skiluðu 140 manns inn svörum. Guðbjartur Hannesson þingmaður dró úr kassanum nafn Björns Guðmundssonar á Akranesi. Við óskum Birni til hamingju með nýja GPS tækið með Íslandskortunum sem að stórum hluta eru unnin úr IS 50V gögnum Landmælinga Íslands en Garmin tækin eru seld [...]
Opið hús hjá Landmælingum Íslands 8. janúar
Í tilefni af því að 10 ár eru frá því að Landmælingar Íslands fluttu á Akranes er Akurnesingum og landsmönnum öllum boðið í heimsókn til Landmælinga Íslands að Stillholti 16-18 á milli kl. 14 og 19, fimmtudaginn 8. janúar. Starfsmenn stofnunarinnar verða á staðnum til að fræða gesti um starfsemina, Þórunn Sveinbjarnadóttir umhverfisráðherra kemur í heimsókn, [...]
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Starfsfólk Landmælinga Íslands óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á árinu 2009.
Greinargerð og tillögur um innleiðingu INSPIRE á Íslandi
Þann 15. maí 2007 tók gildi í Evrópusambandinu tilskipun um notkun og miðlun landupplýsinga sem nefnist INSPIRE (http://www.ec-gis.org/inspire). Markmið tilskipunarinnar er að samræma og samnýta opinberar landupplýsingar, einkum í þágu umhverfismála. Eitt af lykilatriðum tilskipunarinnar er átak við aðgera opinberar landupplýsingar aðgengilegar á netinu til hagsbóta fyrir allt samfélagið. INSPIRE mun taka gildi á Íslandi [...]
Hliðarhreyfing lands varð mun meiri en áður var talið
Þó svo við byggjumst við talsverðum hreyfingum á landinu, áttum við ekki von á þessu stökki,“ segir Guðmundur Valsson mælingaverkfræðingur hjá Landmælingum Íslands en komnar eru lokaniðurstöður úr mæliátaki sem LMÍ og Vegagerðin stóðu fyrir og fram fóru á Suðvesturlandi dagana 6.-16. október. Þar komu fram gríðarlegar afleiðingar Suðurlandsskjálftanna í maí, sem sýna meðal annars allt [...]
Vel heppnaður vinnudagur
Hvað ber framtíðin í skauti sér ? Föstudaginn 24. október síðastliðinn fór allt starfslið Landmælinga Íslands upp á Hótel Glym í Hvalfirði þar sem skipulagður hafði verið sameiginlegur vinnudagur. Meginverkefnið var að ræða möguleg tækifæri og breytingar sem framundan eru í starfsemi Landmælinga Íslands s.s. vegna breyttra krafna, tæknibreytinga og breyttra ytri aðstæðna í þjóðfélaginu. [...]
Landupplýsingar 2008
Þann 22. október var ráðstefnan Landupplýsingar 2008 haldin á vegum LÍSU samtakanna. Starfsmenn Landmælinga Íslands kynntu þar m.a. nokkur verkefni sem unnið er að á stofnuninni um þessar mundir. Kolbeinn Árnason kynnti niðurstöður CORINE landflokkunarinnar (ppt 4,4 mb), Guðmundur Valsson ræddi um hvernig leysa megi aflögun á viðmiðunum og Eydís Líndal Finnbogadóttir og Gunnar H. [...]
Ársþingi Eurogeographics lokið í Rúmeníu
Á 8. árþingi Eurogeographics sem haldið var í borginni Sibiu í Rúmeníu á dögunum var Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, endurkjörinn forseti samtakanna. Að þessu sinni var aðal umræðuefni ársþingsins, hvernig best sé að uppfylla væntingar í samfélögum þar sem landfræðilegar upplýsingar eru í auknu mæli notaðar í ákvarðanatöku, viðskiptum og tómstundum. „Landfræðilegar upplýsingar segja [...]
Selfoss færðist til í skjálftanum
Frétt af mbl.is 24/9 2008, kl. 15:06. Mæla þarf land upp á nýtt eftir jarskjálftana í maí þar sem mælipunktar færðust til í atganginum. á fréttasíðunni suðurglugganum segir að Selfoss hafi færst til suðausturs um 17 cm og hækkað um 6 cm. Unnið er að endurmælingum að sögn Páls Bjarnasonar, tæknifræðings hjá Verkfræðistofu Suðurlands. Á næstu vikum [...]


