Um miðjan maí mánuð var lokið við samantektir um framvindu á innleiðingu INSPIRE tilskipunarinnar hér á landi. Um er að ræða reglubundnar skýrslur, annars vegar yfirlit (monitoring report) um stöðuna á gagnasettum hér á landi sem tengjast INSPIRE tilskipuninni (eða koma til með að verða hluti af grunngerðinni) og hins vegar samantekt á ensku og [...]
Landmælingar Íslands hljóta jafnlaunavottun VR
Landmælingar Íslands hafa hlotið jafnlauavottun VR og er stofnunin fyrst íslenskra ríkisstofnana til að hljóta slíka vottun. Þar með hefur fengist staðfesting á því að búið sé að kerfisbinda launaákvarðanir, koma upp jafnlaunakerfi samkvæmt kröfum ÍST 85:2012 jafnlaunastaðalsins og að nú verði kerfisbundið fylgst með því hjá stofnuninni að starfsfólki sem vinnur sömu eða jafnverðmæt [...]
IceCORS-stöð Landmælinga Íslands sett upp á Reykhólum
Landmælingar Íslands hafa sett upp IceCORS-mælistöð á Reykhólum en hún er hluti af kerfi sem nær yfir allt landið. Á Reykhólavefnum má sjá frétt um verkefnið og stutt viðtal við Þórarinn Sigurðsson mælingaverkfræðing.
Landmælingar Íslands „Stofnun ársins 2013″
Landmælingar Íslands urðu í fyrsta sæti í vali á „Stofnun ársins 2013“ í flokki meðalstórra stofnana (20-49 starfsmenn) en það var tilkynnt við hátíðlega athöfn á Hilton Nordica hótelinu í dag 24. maí 2013 að viðstöddum fjölda fólks. Þetta í annað sinn sem stofnunin hlýtur titilinn „Stofnun ársins“ og ber sú góða einkunn sem starfsmen Landmælinga [...]
Vefþjónusta fyrir spjaldtölvur
Við höfum tekið í notkun prufuútgáfu á spjaldtölvu vefþjónustu. Vefþjónustan hefur verið í prófun í dánokkurn tíma og hafa notendur verið ánægðir með þjónustuna. Við hvetjum alla sem nota spjaldtölvu eða snjallsíma til að prófa vefþjónustuna. Við munum á næstunni bæta við fleiri þjónustum sem hægt verður að skoða í snjallsímum og spjaldtölvum. Prufuþjónustuna er [...]
Háskólanemi skráir örnefni
Hjá Landmælingum Íslands hefur ávallt verið unnið ötullega að skráningu örnefna fyrst á kort og síðustu ár í gagnagrunn stofnunarinnar. Þar hefur samvinna við fólkið í landinu og sérfræðinga hjá nafnfræðisviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum ávallt verið í fyrirrúmi. Háskólanemar hafa einnig unnið við skráningu örnefna en á dögunum afhenti Þórdís Birna Lúthersdóttir [...]
Fréttabréfið Kvarðinn er komið út
Annað tölublað Kvarðans, fréttabréfs Landmælinga Íslands, á árinu 2013 er komið út. Í blaðinu er meðal annars sagt frá nýrri þekju gervitunglamynda af Íslandi, uppfærðri örnefnaskráningu og hlutverki Landmælinga Íslands samkvæmt nýjum náttúruverndarlögum. Kvarðinn er aðeins gefinn út á rafrænu formi á heimasíðu Landmælinga Íslands og hann má finna með því að smella hér. [...]
Dagur umhverfisins
Á sumardaginn fyrsta 25. apríl var Dagur umhverfisins og í tilefni þess ákvað starfsfólk Landmælinga Íslands að láta sitt ekki eftir liggja í því að bæta umhverfið. Starfsfólkið dreif sig út í góða veðrið í morgun 26. apríl, slóst í för með starfsfólki á Bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar og tíndi rusl í nærumhverfinu. Gengið var með stóra [...]
Kosningavefsjá 2013
Landmælingar Íslands hafa opnað kosningavefsjá sem veitir landfræðilega sýn inn í kosningar. Til að skoða vefsjána smellið hér.
Kosningar og kort
Allmargar fyrirspurnir um kort er tengjast Alþingiskosningum 2013 hafa borist Landmælingum Íslands að undanförnu. Mest hefur verið spurt um kort sem sýna kjördæmi og upplýsingar varðandi stærð kjördæma. Starfsmenn Landmælinga hafa nú brugðist við þessum fyrirspurnun og gert vefsjá sem finna má á vef stofnunarinnar. Í vefsjánni sést hvernig kjördæmin skiptast og ef smellt er [...]


