Landmælingar Íslands reka net svokallaðra
Nýtt hæðarkerfi fyrir Ísland
Í Kvarðanum, fréttabréfi Landmælinga Íslands, sem kom út í október síðastliðnum er fróðlegt viðtal við Guðmund Valsson mælingarverkfræðing um nýtt hæðarkerfi fyrir Ísland. Undanfarin ár hefur Guðmundur unnið að uppbyggingu og viðhaldi á sameiginlegu hæðarkerfi fyrir allt Ísland, með það að markmiði að leggja samfélaginu til áreiðanlegan grundvöll fyrir hæðarmælingar. Í viðtalinu við Guðmund kemur fram að [...]
Umhverfisráðherra í heimsókn
Í dag heimsótti Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra Landmælingar Íslands. Með henni í för voru ráðuneytisstjóri, aðstoðarmaður ráðherra og upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins.
Landshæðarkerfi Íslands
Óhætt er að segja að stórum áfanga sé náð með útkomu skýrslu sem inniheldur allar punktlýsingar fyrsta sameiginlega landshæðarkerfis Íslands. Skýrslunni sem er rúm 16 mb á pdf formi er hægt að hlaða niður. Seinna á þessu ári kemur út ítarleg tækniskýrsla. Í þessari skýrslu eru sem fyrr segir allar punktlýsingar og kort sem sýna staðsetningu punktanna auk þess [...]
Fyrsta sameiginlega hæðarkerfið fyrir Ísland
Þann 15. desember síðastliðinn stóðu Landmælingar Íslands fyrir kynningarfundi í tilefni þess að nú er að verða til fyrsta sameiginlega hæðarkerfið fyrir allt Ísland. Á fundinum voru kynntar niðurstöður útreikninga vegna nýja hæðarnetsins og hugmyndir um viðhald og frekari mælingar ræddar. Alls sóttu fundinn um 60 manns frá hinum ýmsu stofnunum, sveitarfélögum og verkfræðistofum. [...]
Uppbygging sameiginlegs hæðarkerfis fyrir Ísland
Í tilefni af því að nú er að verða til fyrsta sameiginlega hæðarkerfið fyrir Ísland bjóða Landmælingar Íslands til kynningarfundar þriðjudaginn 15. desember kl. 9:00 í salnum Háteigi á Grand Hóteli. Þar munu verða haldin erindi um nýja hæðarkerfið og eru fyrirlesarar Jaakko Mäkinen FGI (The Finnish Geodetic Institute), Jón Helgason Vegagerðinni, og Guðmundur Valsson [...]




