Mánudaginn 18. júní samþykkti Alþingi lög sem heimila IPA stuðning ESB við uppbyggingu á NATURA 2000-samstarfsneti á Íslandi. Samkvæmt því verður allt vistkerfi og fuglalíf á Íslandi skráð með það fyrir augum að auðkenna svæði sem þarfnast verndar, einnig mun það nýtast í skipulagsvinnu og ýmsum öðrum verkefnum opinberra aðila. Landmælingar Íslands taka þátt í [...]
Árangursríkur fundur um kortamál á Norðurslóðum
Dagana 5.-6. apríl 2011 funduðu fulltrúar kortastofnana Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Danmerkur, Grænlands, Bandaríkjanna, Rússlands og Kanada um uppbyggingu á grunngerð fyrir landupplýsingar á norðurslóðum (Arctic SDI). Auk fulltrúa kortastofnananna tók fulltrúi Norðurskautsráðsins þátt en verkefnið er unnið í nánu samstarfi við ráðið. Verkefnið nær til mjög stórs svæðis á norðurhveli jarðar sem þekur 1/6 [...]
Gestagangur hjá Landmælingum Íslands
Um daginn fengum við heimsókn frá hollenskum mælinganemum frá háskólanum í Utrecht. Gunnar H Kristinsson og Guðmundur Valsson tóku á móti nemunum sem hlýddu á fyrirlestur eftir Guðmund. Einnig komu í heimsókn til Landmælinga Íslands hópur fólks frá Korta- og fasteignastofnun Rúmeníu. Rúmenarnir eru hér á landi vegna samstarfsverkefnis við Þjóðskrá Íslands sem er fjármagnað af Þróunarsjóði EFTA. Fluttir voru [...]
Forseti Evrópuráðsins ræddi landupplýsingar
Á 10 ára afmæli EuroGeographics-samtakanna var samtökunum hrósað fyrir að leitast við að stuðla að auknu framboði og bættu aðgengi að landupplýsingagögnum. Herman Van Rompuy, forseti Evrópuráðsins, hældi meðlimum EuroGeographics fyrir ómetanlega vinnu þeirra við að gera landupplýsingagögn aðgengileg og auðfáanleg í Evrópusambandinu. Í opnunarræðu ársþings EuroGeographics-samtakanna sem haldið var í Brussel þetta árið nefndi Van [...]
Grunngerð landupplýsinga á norðurheimskautssvæðinu
Þann 14.- 15. október síðastliðinn hittust fulltrúar kortastofnana Íslands, Noregs, Danmerkur/Grænlands, Rússlands, Kanada, Bandaríkjanna, Svíþjóðar og Finnlands ásamt fulltrúa frá Arctic Council, í Brussel. Tilgangur fundarins var að hefja formlega uppbyggingu grunngerðar landupplýsinga á norðurheimskautssvæðinu (Arctic SDI). Meginmarkmið verkefnisins er að byggja upp einsleitan kortagrunn af norðurheimskautssvæðinu sem á að verða grunnkort fyrir ýmis þemakort [...]
Vel heppnaður fundur í Færeyjum
Norrænt samstarf á sviði landupplýsinga er mikilvægt fyrir Landmælingar Íslands en með því skapast m.a. mjög mikilvægur vettvangur til að afla og miðla þekkingu. Til að ræða samstarfið og forgangsraða verkefnum hittast forstjórar og helstu stjórnendur norrænu kortastofnananna einu sinni á ári. Að þessu sinni var fundurinn haldinn í Þórshöfn í Færeyjum í boði Umhverfisstofunnar [...]
Forstjóri LMÍ kjörinn forseti EuroGeographics
Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, verður forseti samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu næstu tvö árin. Ársþingi samtakanna, EuroGeographics, lauk í dag 10. október 2007 í Dubrovnik í Króatíu en Landmælingar Íslands og Fasteignamat ríkisins eiga aðild að þeim fyrir Íslands hönd. Meginþema ársþingsins að þessu sinni var “hlutverk korta- og fasteignastofnana á sviði umhverfismála [...]
Ársþing EuroGeographics, samtaka korta- og fasteignastofnana 2007
Dagana 7.-10. október næstkomandi munu EuroGeographics, samtök korta og fasteignastofnana í Evrópu halda ársþing sitt. Að þessu sinni verður þingið haldið í borginni Dubrovnik í Króatíu í boði Króatísku korta- og fasteignastofnunarinnar (State Geodetic Administration of the Republic of Croatia).



