LMI.is - Fréttir
IS 500V gögn Landmælinga Íslands gjaldfrjáls
	<description>Landmælingar Íslands vilja að gögn þeirra séu notuð af sem flestum. Árið 2011 var sú ákvörðun tekin að bjóða IS 500V gögn stofnunarinnar gjaldfrjáls.
Hægt er að fá gögnin afhent gegn þjónustugjaldi sem er kr. 3850,- án vsk og er gerður afnotasamningur þar um. 
Ef birta á gögnin og/eða dreifa þeim þarf að fá leyfi hjá Landmælingum Íslands og greiða birtingargjald fyrir.
Hægt er að fá gögnin á gdb, shp og dwg formi.
Áhugasamir sendi tölvupóst á lmi@lmi.is.</description>
Fitjuskrár aðgengilegar á vef LMÍ
	<description>Fljótlega eftir áramót kemur út frumvarp að 2. útgáfu staðalsins ÍST 120 Skráning og flokkun landupplýsinga – Fitjuskrár. Í samræmi við breytingar á umfangi staðalsins eru fitjuskrárnar sem tengjast staðlinum núna aðgengilegar hér á heimasíðu LMÍ.</description>
Frumteikningar dönsku herforingjaráðskortanna og ljósmyndir
	<description>Nú er komið gott aðgengi að öllum bæjarteikningunum, frumteikningum Atlaskorta og ljósmyndum sem landmælingadeild herforingjaráðs Dana teiknaði á árunum 1902-1920.
Í bæjarteikningaskránni eru sérmælingar og gerð uppdrátta af íslenskum bæjum, þéttbýlissvæðum og þorpum, þá er hægt að skoða frumteikningar Atlaskorta auk þeirra ljósmynda sem mælingamennirnir tóku þegar þeir voru við störf sín.</description>
Ný  útgáfa IS 50V
	<description>Þann 15. desember kom út útgáfa 3.2 af IS 50V gagnagrunni Landmælinga Íslands.
Helsta áhersla þessarar útgáfu lá í uppfærslu á vatnafarslaginu en um 19% landsins hefur verið uppfært. Nánar er hægt að lesa um gögnin í skýrslu um IS 50V 3.2.</description>
Loftmyndasafn opnað
	<description>Stafrænt loftmyndasafn LMÍ var gert aðgengilegt notendum þann 1. desember síðastliðinn hér á heimasíðu stofnunarinnar. Í safninu hafa notendur aðgang að um 20.000 loftmyndum frá árunum 1987-2000 en stöðugt er unnið að skönnun þeirra mynda sem Landmælingar Íslands hafa í filmusafni sínu og munu þær bætast við jafnóðum og  þær verða skannaðar.</description>
Landupplýsingagátt opnuð
	<description>Landmælingar Íslands opnuðu í dag Landupplýsingagátt (e: geoportal) í tengslum við nýtt hlutverk sitt er snýr að grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar.</description>
Höfðingleg gjöf frá Sigurrós
	<description>Síðastliðinn föstudag barst Landmælingum Íslands höfðingleg gjöf en þá færði Sigurrós Júlíusdóttir stofnuninni ljósmynd að gjöf og til varðveislu. 
Ljósmyndin er af tveimur dönskum landmælingamönnum á hestbaki sem voru við mælingar á Íslandi líklega á fyrsta áratug síðustu aldar.</description>
Viðurkenning fyrir nýsköpun í opinberum rekstri
	<description>Landmælingar Íslands fengu þann 3. nóvember 2011 viðurkenningu fyrir nýsköpun í opinberum rekstri fyrir verkefnið „"Örnefni á vefnum“ á ráðstefnu á Grand Hótel í Reykjavík.</description>
Landupplýsingar 2011
	<description>Fimmtudaginn 20. október var ráðstefnan Landupplýsingar 2011 haldin á Grand Hótel. 
Landmælingar Íslands áttu þrjá fyrirlesara þá Gunnar H. Kristinsson sem talaði um 2. útgáfu ÍST 120 staðalsins, Jóhann Helgason sem talaði um uppfærslu á vatnagrunni IS 50V á árinu 2011 og Samúel Jón Gunnarsson sem fræddi viðstadda um INSPIRE landupplýsingagátt og opinn frjálsan hugbúnað.</description>
Birting örnefna á loftmyndum í nýrri örnefnasjá
	<description>Í tilefni af degi íslenskrar náttúru opna Landmælingar Íslands nýja örnefnasjá á vefsíðunni http://atlas.lmi.is/ornefnasja/
Örnefni skipa mikilvægt hlutverk í sögu Íslands. Þau hafa sagt þjóðinni til um hvar atburðir hafa átt sér stað, hvernig land hefur verið nytjað eða hvernig eignamörk voru afmörkuð svo dæmi séu tekin. Áður en GPS tæki tóku til við að segja fólki til um staðsetningu gegndu örnefni mikilvægu hlutverki í að leiða menn áfram um óbyggt og hrjóstrugt landið og gera enn þegar tæknin bregst okkur. Örnefnasjá Landmælinga Íslands er vefsjá þar sem megin markmiðið er að opna aðgengi að örnefnum á auðveldan og notendavænan hátt en Landmælingar Íslands halda utan um slíkan grunn samkvæmt lögum. Örnefnagrunnur Landmælinga Íslands inniheldur yfir 58 000 örnefni og fer þeim sífellt fjölgandi enda mikill áhugi almennings á varðveislu örnefna og því um leið sögu íslenskrar þjóðar og náttúru.</description>
GNSS-jarðstöðvakerfi
	<description>Landmælingar Íslands vinna að því að byggja upp GNSS-jarðstöðvakerfi sem starfar í rauntíma. Við hönnun kerfisins var leitast við að nýta sem flestar stöðvar sem nú þegar eru í gangi og notaðar eru í öðrum verkefnum.</description>
Hvítbók um náttúruvernd á Íslandi komin út
	<description>Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur kynnt ríkisstjórn hvítbók sem nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga hefur unnið en í henni felst heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi.</description>
Norrænar heimsóknir
	<description>Fimmtudaginn 18. ágúst og föstudaginn 19. ágúst fengu Landmælingar Íslands heimsókn frá norrænum kollegum. 
Á fimmtudeginum voru haldnir hér þrír norrænir fundir; á sviði starfsmannamála, fjármála auk þess sem NIK gruppen hélt hér fund en í þeim hópi eru tengiliðir alþjóðamála kortastofnana á Norðurlöndum.</description>
Ný gjaldskrá tekur gildi
	<description>Ný gjaldskrá fyrir Landmælingar Íslands hefur verið samþykkt af umhverfisráðherra. Í gjaldskránni er tekið mið af verðlagsbreytingum undanfarinna ára en einnig hafa verið gerðar ýmsar lagfæringar í takt við breyttar áherslur.</description>
Nýtt fréttabréf og ný vefsíða
	<description>Landmælingar Íslands hafa opnað nýja vefsíðu sem fjallar um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandi og INSPIRE.  Þar má m.a. finna tengla í áhugaverðar vefsíður sem tengjast  grunngerð fyrir landupplýsingar og INSPIRE tilskipun ESB. Vefsíðan er á slóðinni: inspire.lmi.is
Þá hafa Landmælingar Íslands gefið út fréttabréf um efnið sem lesa má hér.</description>
Samráðsfundur um IS 50V
	<description>Þriðjudaginn 31. maí var haldinn kynningafundur á nýjum útgáfum IS 50V gagnagrunnsins. Til fundarins mættu 16 notendur frá 12 stofnunum og fyrirtækjum. Farið var yfir það sem er nýtt í IS 50V 3.0 og 3.1 útgáfunum og framtíðaráætlanir fyrir uppfærslu grunnsins voru kynntar. Að auki voru hugmyndir um vefþjónustur ræddar og farið yfir IST 120 staðalinn. Fundarmenn voru duglegir við að spyrja starfsmenn LMÍ spurninga er varða framleiðsluna og koma með ábendingar um hvað betur mætti fara svo að grunnurinn nýttist notendum enn betur.</description>
Landmælingar Íslands sjötta besta stofnunin
	<description>Landmælingar Íslands urðu í sjötta sæti í vali á stofnun ársins í flokki minni stofnana og einnig ef miðað er við heildarfjölda. 
SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð nú í sjötta sinn að þessu vali. Könnun var gerð meðal allra starfsmanna stofnunarinnar óháð því í hvaða stéttarfélagi þeir væru. Ljóst er að sú einkunn sem þeir gefa vinnustað sínum er vitnisburður um góðan starfsanda, starfsmannastefnu og stjórnunar Landmælinga Íslands, en heildareinkunn hækkaði milli ára úr 4,40 í 4,52. 
Landmælingar Íslands hafa tekið þátt í þessari könnun frá upphafi og hafa ætíð verið framarlega í flokki. Árið 2006 varð stofnunin í 10 sæti og árið eftir í því 9. Árið 2008 var farið að skipta stofnunum upp í minni og stærri stofnanir og urðu Landmælingar Íslands þá í sjötta sæti í heild og sjötta sæti minni stofnana. Í fyrra varð stofnunin svo í 5. sæti heildarinnar og einnig í flokki minni stofnana.
Heimasíða SFR</description>
Alþingi samþykkir ný lög um grunngerð
	<description>Mánudaginn 2. maí voru samþykkt á Alþingi lög um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar nr. 44/2011. Markmið laganna er að byggja upp og viðhalda grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar á vegum stjórnvalda og tryggja aðgengi stjórnvalda og almennings að landupplýsingum.</description>
Willysjeppinn fluttur á Skógasafn
	<description>Á dögunum komu tveir starfsmenn Skógasafns í heimsókn til Landmælinga Íslands. Þeir voru komnir til að sækja muni sem hafa verið í eigu stofnunarinnar til margra ára. 
Flestir munanna voru til sýnis á sýningunni „Í rétta átt“ á Byggðasafninu að Görðum sem tekin var niður síðasta vor.  
Stærsti gripurinn sem fer til varðveislu á Skógasafn er Willysjeppi árgerð 1946, sem keyptur var af Landmælingum Íslands í kringum árið 1995 og var endurgerður til að líkjast þeim jeppum sem notaðir voru í mælingaleiðöngrum.</description>
Ársskýrsla 2010
	<description>Nú er ársskýrsla Landmælinga Íslands fyrir árið 2010 komin út. 
Í ársskýrslunni er að finna ársreikninga stofnunarinnar, en rekstur stofnunarinnar gekk vel á síðasta ári, auk þess sem upplýst er um það helsta sem gert var á stofnuninni á árinu 2010.
Forsíðumynd ársskýrslunnar er tekin að Fjallabaki.</description>