Aðgengi að kortum hefur aukist með tilkomu vefsins
Af þýðingum og furðunöfnum.
Nú í byrjun árs höfum við hjá LMÍ tekið þýðingu landupplýsingagáttarinnar traustataki og ætlum okkur að vera komin langleiðina með að klára þýðinguna fyrir vormánuði. Ekki er sopið þó í ausuna sé komið er máltæki sem vel á við því vel yfir 3.500 textastrengi þarf að þýða og ekki eru til viðunandi þýðingar á mörgum [...]
Kraftur í skráningu lýsigagna
Skráning lýsigagna inn í Landupplýsingagáttina hefur gengið vel og virðist vera kominn nokkur kraftur í skráninguna nú í byrjun vetrar. Þegar við kíktum á tölfræðina var skemmtilegt að sjá að yfir 50% skráninga hafa komið inn nú í nóvember og voru þar stórtækastir kollegar okkar hjá Reykjavíkurborg og Orkuveitunni. Alls hafa borist 40 skráningar inn [...]
Ný fitjuskrá
Ný fitjuskrá hefur bæst við röð fitjuskráa sem eru aðgengilegar hér á heimasíðu LMÍ. Um er að ræða fitjuskrá um vistgerðir og hefur Náttúrufræðistofnun Íslands haft umsjón með efnisinnihaldinu. Eftirfarandi texti er tekin úr fitjuskránni: „Á síðustu árum hefur Náttúrufræðistofnun Íslands unnið að flokkun vistgerða. Alls hafa verið ákvarðaðar 24 vistgerðir á hálendi Íslands og vinna [...]
Vinnuhópar um vatn og samgöngur
Miðvikudaginn 7. nóvember hittust í fyrsta sinn vinnuhópar vegna landupplýsinga vatnafars og samgangna. Vinnuhóparnir eru hugsaðir sem stuðningur við innleiðingu grunngerðar landupplýsinga á Íslandi ásamt innleiðingu INSPIRE tilskipunar Evrópusambandsins. Á fundinum var samankomi rjómi landupplýsingasérfræðinga þessara þema frá 8 stofnunum og fóru þeir yfir helstu einkenni og eiginleika sinna gagnasetta. Ljóst er allt frá upphafi [...]
Skotar og Norður Írar með öfluga grunngerð
Þann 8 – 11 október síðastliðin fóru þrír starfsmenn Landmælinga Ísland í heimsókn til Skotlands og Norður-Írlands með stuðningi Evrópsambandsins (TAIEX aðstoð). Ferðin var farin til að afla upplýsinga og reynslu við uppbyggingu grunngerðar landupplýsinga á landsvísu. Þrátt fyrir að ýmis mál tengd INSPIRE tilskipuninni hafi verið rædd ítarlega, var mikil áherslan lögð á skipulag [...]
Jarðstöðin RHOF tengd jarðstöðvakerfi LMÍ
„Á dögunum var tíunda jarðstöðin tengd jarðstöðvakerfi Landmælinga Íslands. Stöðin er staðsett á Raufarhöfn og hefur skammstöfunina RHOF. Hún er kostuð af háskólanum í Savoie í Frakklandi og er í umsjón Veðurstofu Íslands og tilheyrir ISGPS neti hennar. Á næstunni er gert ráð fyrir að bæta a.m.k. tveimur stöðvum við kerfið og er þar helst [...]
Grunngerðarverkefnin framundan á haustmánuðum 2012
Á undanförnum vikum hafa Landmælingar Íslands unnið að verkáætlun vegna grunngerðar landupplýsinga fyrir haustið 2012. Áætlunin snertir á ýmsan hátt þá opinberu aðila sem starfa með landupplýsingar og vonast LMÍ eftir góðu samstarfi hér eftir sem hingað til. Áætlun haustsins er í stórum dráttum þessi: Lýsigögn: Lýsigögn LMÍ fyrir önnur gögn en IS 50V [...]











